Fluoxetine Vitabalans Filmuhúðuð tafla 20 mg

Quốc gia: Iceland

Ngôn ngữ: Tiếng Iceland

Nguồn: LYFJASTOFNUN (Icelandic Medicines Agency)

Buy It Now

Tờ rơi thông tin Tờ rơi thông tin (PIL)
29-11-2021

Thành phần hoạt chất:

Fluoxetinum hýdróklóríð

Sẵn có từ:

Vitabalans Oy

Mã ATC:

N06AB03

INN (Tên quốc tế):

Fluoxetinum

Liều dùng:

20 mg

Dạng dược phẩm:

Filmuhúðuð tafla

Loại thuốc theo toa:

(R) Lyfseðilsskylt

Tóm tắt sản phẩm:

502851 Þynnupakkning PVC/ál V0039

Tình trạng ủy quyền:

Markaðsleyfi útgefið

Ngày ủy quyền:

2021-04-26

Tờ rơi thông tin

                                1
FYLGISEÐILL: UPPLÝSINGAR FYRIR NOTANDA LYFSINS
FLUOXETINE VITABALANS 20 MG FILMUHÚÐAÐAR TÖFLUR
fluoxetin
LESIÐ ALLAN FYLGISEÐILINN VANDLEGA ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ NOTA
LYFIÐ. Í HONUM ERU MIKILVÆGAR
UPPLÝSINGAR.
-
Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann
síðar.
-
Leitið til læknisins eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari
upplýsingum.
-
Þessu lyfi hefur verið ávísað til persónulegra nota. Ekki má
gefa það öðrum. Það getur valdið
þeim skaða, jafnvel þótt um sömu sjúkdómseinkenni sé að
ræða.
-
Látið lækninn eða lyfjafræðing vita um allar aukaverkanir.
Þetta gildir einnig um aukaverkanir
sem ekki er minnst á í þessum fylgiseðli. Sjá kafla 4.
Í FYLGISEÐLINUM ERU EFTIRFARANDI KAFLAR
:
1.
Upplýsingar um Fluoxetine Vitabalans og við hverju það er notað
2.
Áður en byrjað er að nota Fluoxetine Vitabalans
3.
Hvernig nota á Fluoxetine Vitabalans
4.
Hugsanlegar aukaverkanir
5.
Hvernig geyma á Fluoxetine Vitabalans
6.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
1.
UPPLÝSINGAR UM FLUOXETINE VITABALANS OG VIÐ HVERJU ÞAÐ ER NOTAÐ
Fluoxetine Vitabalans inniheldur virka efnið fluoxetin sem tilheyrir
flokki lyfja sem kallast sérhæfðir
serótónín endurupptökuhemlar (SSRI-þunglyndislyf).
Þetta lyf er notað til að meðhöndla eftirfarandi:
_Fullorðnir: _
−
Alvarleg þunglyndisköst.
−
Áráttu- og þráhyggjuröskun (síendurteknar hugsanir og
áráttuhegðun).
−
Átröskun (bulimia nervousa): Fluoxetine Vitabalans er notað ásamt
sálrænni meðferð til að
draga úr átköstum og þvinguðum uppköstum/hægðalosun.
_Börn og unglingar, 8 ára og eldri: _
−
Miðlungs til alvarleg þunglyndisköst, sem ekki lagast eftir 4-6
tíma af samtalsmeðferð.
AÐEINS
á
að gefa börnum og unglingum með miðlungs til alvarlegt þunglyndi
Fluoxetine Vitabalans
samhliða samtalsmeðferð.
2.
ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ NOTA FLUOXETINE VITABALANS
Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum
sjúkdómi eða í öðru
                                
                                Đọc toàn bộ tài liệu
                                
                            

Đặc tính sản phẩm

                                1
SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS
1.
HEITI LYFS
Fluoxetine Vitabalans 20 mg filmuhúðaðar töflur.
2.
INNIHALDSLÝSING
Hver tala inniheldur 20 mg af fluoxetinhýdróklóríði, sem
jafngildir 20 mg af fluoxetini.
Sjá lista yfir öll hjálparefni í kafla 6.1.
3.
LYFJAFORM
Filmuhúðuð tafla.
Ljósgræn, kringlótt, kúpt tafla með deiliskoru, þvermál 9 mm.
Töflunni má skipta í jafna skammta.
4.
KLÍNÍSKAR UPPLÝSINGAR
4.1
ÁBENDINGAR
_Fullorðnir: _
•
Alvarleg þunglyndisköst.
•
Áráttu-þráhyggjuröskun (obsessive-compulsive disorder, OCD).
•
Lotugræðgi (bulimia nervosa): fluoxetin er ætlað sem stuðningur
við sálræna meðferð til að
draga úr átköstum og þvinguðum uppköstum/hægðalosun (purging
activity).
_Börn og unglingar, 8 ára og eldri: _
•
Miðlungs til alvarleg þunglyndisköst, sem ekki lagast eftir 4-6
tíma af samtalsmeðferð. Aðeins á
að gefa börnum og unglingum með miðlungs til alvarlegt þunglyndi
þunglyndislyf samhliða
samtalsmeðferð.
4.2
SKAMMTAR OG LYFJAGJÖF
Skammtar
_Alvarlegt þunglyndi _
Fullorðnir og aldraðir: Ráðlagður skammtur er 20 mg á
sólarhring. Nauðsynlegt er að endurskoða og
aðlaga skammt innan 3-4 vikna frá upphafi meðferðar ef þörf er
á, og þar á eftir eins og klínískt er talið
þurfa. Þrátt fyrir að stærri skammtar geti aukið hættuna á
aukaverkunum má auka skammt smám
saman upp í að hámarki 60 mg hjá sjúklingum sem eru með
ófullnægjandi svörun við 20 mg (sjá
kafla 5.1). Til þess að halda sjúklingum á minnsta virka skammti
skal aðlaga skammt gætilega eftir
þörfum hvers einstaklings.
Sjúklingum með þunglyndi skal gefa þunglyndislyf í minnst 6
mánuði svo fullvíst sé að þeir séu
einkennalausir.
2
_Áráttu-þráhyggjuröskun (OCD) _
Fullorðnir og aldraðir: Ráðlagður skammtur er 20 mg á
sólarhring. Þrátt fyrir að stærri skammtar geti
aukið hættuna á aukaverkunum má auka skammt smám saman upp í að
hámarki 60 mg hjá sjúklingum
sem eru með ófullnægjandi sv
                                
                                Đọc toàn bộ tài liệu
                                
                            

Tìm kiếm thông báo liên quan đến sản phẩm này