Litarex Forðatafla 6 mmól

Šalis: Islandija

kalba: islandų

Šaltinis: LYFJASTOFNUN (Icelandic Medicines Agency)

Nusipirk tai dabar

Pakuotės lapelis Pakuotės lapelis (PIL)
28-11-2023
Prekės savybės Prekės savybės (SPC)
28-08-2023

Veiklioji medžiaga:

Lithii citras

Prieinama:

Teva B.V.*

ATC kodas:

N05AN01

INN (Tarptautinis Pavadinimas):

Lithium

Dozė:

6 mmól

Vaisto forma:

Forðatafla

Recepto tipas:

(R) Lyfseðilsskylt

Produkto santrauka:

143800 Töfluílát

Autorizacija statusas:

Markaðsleyfi útgefið

Leidimo data:

1973-05-10

Pakuotės lapelis

                                1
FYLGISEÐILL: UPPLÝSINGAR FYRIR NOTANDA LYFSINS
LITAREX 6 MMÓL LITÍUM FORÐATÖFLUR
litíumsítrat, sem jafngildir 42 mg af litíum
LESIÐ ALLAN FYLGISEÐILINN VANDLEGA ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ NOTA
LYFIÐ. Í HONUM ERU MIKILVÆGAR
UPPLÝSINGAR.
-
Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann
síðar.
-
Leitið til læknisins eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari
upplýsingum.
-
Þessu lyfi hefur verið ávísað til persónulegra nota. Ekki má
gefa það öðrum. Það getur valdið
þeim skaða, jafnvel þótt um sömu sjúkdómseinkenni sé að
ræða.
-
Látið lækninn eða lyfjafræðing vita um allar aukaverkanir.
Þetta gildir einnig um aukaverkanir
sem ekki er minnst á í þessum fylgiseðli. Sjá kafla 4.
Í FYLGISEÐLINUM ERU EFTIRFARANDI KAFLAR
:
1.
Upplýsingar um Litarex og við hverju það er notað
2.
Áður en byrjað er að nota Litarex
3.
Hvernig nota á Litarex
4.
Hugsanlegar aukaverkanir
5.
Hvernig geyma á Litarex
6.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
1.
UPPLÝSINGAR UM LITAREX
OG VIÐ HVERJU ÞAÐ ER NOTAÐ
Litarex er lyf við geðsjúkdómum (geðrofslyf).
Litarex er notað við geðhæð (maníu) og til að fyrirbyggja
geðhvarfasjúkdóm (geðhæðar-þunglyndis
sjúkdóm).
2.
ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ NOTA LITAREX
Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum
sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og
leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.
EKKI MÁ NOTA LITAREX
-
ef um er að ræða ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju öðru
innihaldsefni lyfsins (talin upp í
kafla 6).
-
ef þú ert með nýrna- eða hjartasjúkdóm.
-
ef truflun er á vökva- og saltjafnvægi líkamans.
-
ef starfsemi skjaldkirtils er skert.
-
ef starfsemi nýrnahettubarkar er skert (Addisons sjúkdómur).
-
ef þú ert þunguð og á þremur fyrstu mánuðum meðgöngu.
-
ef þú ert með leiðnitruflanir í hjarta (Brugadas heilkenni), með
hættu á hjartastoppi eða
skyndidauða
                                
                                Perskaitykite visą dokumentą
                                
                            

Prekės savybės

                                1
SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFSINS
1.
HEITI LYFS
Litarex 6 mmól Li
+
forðatöflur.
2.
INNIHALDSLÝSING
Litíumsítrat sem jafngildir 42 mg af Li
+
(6 mmól Li
+
).
Sjá lista yfir öll hjálparefni í kafla 6.1.
3.
LYFJAFORM
Forðatafla.
Sporöskjulaga, hvít tafla með deiliskoru og merkinu ,,160“
öðrum megin við deiliskoruna og ,,I“
hinum megin.
4.
KLÍNISKAR UPPLÝSINGAR
4.1
ÁBENDINGAR
Litarex er ætlað til notkunar við geðhæð (mania) og sem
fyrirbyggjandi meðferð við geðhvarfasýki.
4.2
SKAMMTAR OG LYFJAGJÖF
Skammtar
FYRIRBYGGJANDI MEÐFERÐ
Fyrstu vikuna er gefinn 6-12 mmól skammtur af litíum (1-2
forðatöflur) á dag. Eftir eina viku á að
ákvarða þéttni litíums í sermi og stilla skammtinn þannig að
12 klst. serumgildi litíums sé á bilinu
0,6-0,8 mmól/l. Beint hlutfall er á milli skammta og sermisþéttni.
Við endurkomu eru skammtar
stækkaðir, og við verulegar aukaverkanir eru skammtar minnkaðir.
MEÐFERÐ
Við bráðri geðhæð á að nota stóran upphafsskammt, 30-40 mmól
daglega, skipt í 4 skammta. Í upphafi
meðferðar er sermisþéttni litíums mæld annan hvern dag og á að
haldast undir 1,2 mmól/l. Eftir u.þ.b.
1 viku er skammturinn minnkaður um helming.
Lyfjagjöf
Til inntöku.
Óhætt er að brjóta forðatöfluna en ekki má tyggja hana eða
mylja.
4.3
FRÁBENDINGAR
-
Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna sem talin
eru upp í kafla 6.1.
-
Nýrna- og hjartabilun.
-
Sjúkdómar með truflunum á vökva- og saltajafnvægi.
-
Skjaldvakabrestur.
-
Addisons sjúkdómur.
-
Fyrsti þriðjungur meðgöngu.
2
4.4
SÉRSTÖK VARNAÐARORÐ OG VARÚÐARREGLUR VIÐ NOTKUN
Almennt
Nauðsynlegt er að fylgjast aukalega með þéttni litíums í sermi
ef um er að ræða endurkomu, miklar
aukaverkanir, aðra sjúkdóma, ástand eða meðferðir sem valda
breytingum á vökva- og saltajafnvægi,
þar með talin meðferð með þvagræsilyfjum.
Skert nýrnastarfsemi
Greint hefur verið frá vefjabreytingum (þ.m.t. píplu- og
millivefsnýrnakvilli)
                                
                                Perskaitykite visą dokumentą
                                
                            

Ieškokite perspėjimų, susijusių su šiuo produktu

Peržiūrėti dokumentų istoriją