Nefoxef Filmuhúðuð tafla 180 mg

Ország: Izland

Nyelv: izlandi

Forrás: LYFJASTOFNUN (Icelandic Medicines Agency)

Vedd Meg Most

Betegtájékoztató Betegtájékoztató (PIL)
18-12-2023
Termékjellemzők Termékjellemzők (SPC)
18-12-2023

Aktív összetevők:

Fexofenadinum hýdróklóríð

Beszerezhető a:

Viatris Limited

ATC-kód:

R06AX26

INN (nemzetközi neve):

Fexofenadinum

Adagolás:

180 mg

Gyógyszerészeti forma:

Filmuhúðuð tafla

Recept típusa:

(R) Lyfseðilsskylt

Termék összefoglaló:

051358 Þynnupakkning V0365

Engedélyezési státusz:

Markaðsleyfi útgefið

Engedély dátuma:

2008-01-24

Betegtájékoztató

                                1
FYLGISEÐILL: UPPLÝSINGAR FYRIR NOTANDA LYFSINS
NEFOXEF 120 MG FILMUHÚÐAÐAR TÖFLUR
NEFOXEF 180 MG FILMUHÚÐAÐAR TÖFLUR
fexófenadínhýdróklóríð
LESIÐ ALLAN FYLGISEÐILINN VANDLEGA ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ NOTA
LYFIÐ. Í HONUM ERU MIKILVÆGAR
UPPLÝSINGAR.
-
Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann
síðar.
-
Leitið til læknisins eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari
upplýsingum um lyfið.
-
Þessu lyfi hefur verið ávísað til persónulegra nota. Ekki má
gefa það öðrum.
Það getur valdið þeim skaða, jafnvel þótt um sömu
sjúkdómseinkenni sé að ræða.
-
Látið lækninn eða lyfjafræðing vita um allar aukaverkanir. Það
gildir einnig um aukaverkenir sem
ekki er minnst á í þessum fylgiseðli. Sjá kafla 4.
Í FYLGISEÐLINUM ERU EFTIRFARANDI KAFLAR
:
1.
Upplýsingar um Nefoxef og við hverju það er notað
2.
Áður en byrjað er að nota Nefoxef
3.
Hvernig nota á Nefoxef
4.
Hugsanlegar aukaverkanir
5.
Hvernig geyma á Nefoxef
6.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
1.
UPPLÝSINGAR UM NEFOXEF OG VIÐ HVERJU ÞAÐ ER NOTAÐ
Fexófenadínhýdróklóríð, virka efnið í lyfinu, tilheyrir hópi
lyfja sem kölluð eru andhistamín.
Nefoxef 120 mg filmuhúðaðar töflur eru samþykktar til notkunar
gegn einkennum svo sem hnerrum,
nefrennsli og kláða í nefi, kláða í augum, táramyndun og roða
í húð, sem yfirleitt koma fram í tengslum
við gróðurofnæmi (ofnæmiskvef).
Nefoxef 180 mg filmuhúðaðar töflur eru samþykktar til notkunar
gegn einkennum svo sem roða í húð,
bjúg og kláða sem koma fram í tengslum við ofnæmisviðbrögð í
húð sem kallast langvinnur ofsakláði.
2.
ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ TAKA NEFOXEF
_ _
EKKI MÁ NOTA NEFOXEF
-
ef þú ert með ofnæmi fyrir fexófenadínhýdróklóríði eða
einhverju öðru innihaldsefni Nefoxef (talin
upp í kafla 6).
VARNAÐARORÐ OG VARÚÐARREGLUR
Leitið ráða hjá lækninum eða lyfjafræðingi áður en Nefoxef
er notað.
-
ef þú ert aldraður/öldruð
-
ef þú hef
                                
                                Olvassa el a teljes dokumentumot
                                
                            

Termékjellemzők

                                1
SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS
1.
HEITI LYFS
Nefoxef 180 mg filmuhúðaðar töflur.
2.
INNIHALDSLÝSING
Hver tafla inniheldur 180 mg af fexófenadínhýdróklóríði, sem
jafngildir 168 mg af fexófenadíni.
Sjá lista yfir öll hjálparefni í kafla 6.1.
3.
LYFJAFORM
Filmuhúðuð tafla.
Gular, ílangar, tvíkúptar og filmuhúðaðar töflur; sléttar á
annarri hliðinni og með deiliskoru á hinni.
Deiliskoran er eingöngu til þess að hægt sé að skipta töflunni
svo auðveldara sé að kyngja henni en
ekki til þess að skipta henni í jafna skammta.
4.
KLÍNÍSKAR UPPLÝSINGAR
4.1
ÁBENDINGAR
Gegn einkennum sem tengjast langvinnum ofsakláða (chronic idiopathic
urticaria).
4.2
SKAMMTAR OG LYFJAGJÖF
Skammtar
_Fullorðnir og börn 12 ára og eldri: _
Ráðlagður skammtur af fexófenadínhýdróklóríði fyrir
fullorðna og börn 12 ára og eldri er 180 mg einu
sinni á dag, fyrir máltíð.
Fexófenadín er lyfjafræðilega virkt umbrotsefni terfenadíns.
_Börn _
_Börn yngri en 12 ára _
Verkun og öryggi fexófenadínhýdróklóríðs 180 mg hjá börnum
yngri en 12 ára hefur ekki verið
rannsakað.
_Sérstakir áhættuhópar _
Rannsóknir hjá sjúklingum í sérstökum áhættuhópum
(öldruðum, sjúklingum með skerta nýrna- eða
lifrarstarfsemi) sýna að ekki er nauðsynlegt að breyta skömmtum
fexófenadínhýdróklóríðs hjá þessum
hópum sjúklinga.
4.3
FRÁBENDINGAR
Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna sem talin
eru upp í kafla 6.1.
4.4
SÉRSTÖK VARNAÐARORÐ OG VARÚÐARREGLUR VIÐ NOTKUN
Eins og fyrir flest ný lyf liggja einungis fyrir takmarkaðar
upplýsingar um notkun þess
2
hjá öldruðum og sjúklingum með skerta nýrna- eða
lifrarstarfsemi.
Gæta skal varúðar við notkun fexófenadíns hjá þessum hópum
sjúklinga.
Sjúklinga með sögu um eða viðvarandi hjarta- og æðasjúkdóma
á að vara við því að andhistamín, sem
hópur lyfja, hafa tengst aukaverkunum eins og hröðum hjartslætti
og hjartsláttarónotum (sjá kafla 4.8.)
Lyf
                                
                                Olvassa el a teljes dokumentumot