Escitalopram Bluefish Filmuhúðuð tafla 15 mg

国家: 冰岛

语言: 冰岛文

来源: LYFJASTOFNUN (Icelandic Medicines Agency)

现在购买

资料单张 资料单张 (PIL)
12-12-2022
产品特点 产品特点 (SPC)
07-03-2022

有效成分:

Escitalopramum oxalat

可用日期:

Bluefish Pharmaceuticals AB

ATC代码:

N06AB10

INN(国际名称):

Escitalopramum

剂量:

15 mg

药物剂型:

Filmuhúðuð tafla

处方类型:

(R) Lyfseðilsskylt

產品總結:

457282 Þynnupakkning Glær þriggja laga þynna (PVC/PE/PVdC/ál). V0326

授权状态:

Markaðsleyfi útgefið

授权日期:

2014-04-11

资料单张

                                1
FYLGISEÐILL: UPPLÝSINGAR FYRIR NOTANDA LYFSINS
ESCITALOPRAM BLUEFISH 5 MG FILMUHÚÐAÐAR TÖFLUR
ESCITALOPRAM BLUEFISH 10 MG FILMUHÚÐAÐAR TÖFLUR
ESCITALOPRAM BLUEFISH 15 MG FILMUHÚÐAÐAR TÖFLUR
escitalopram
LESIÐ ALLAN FYLGISEÐILINN VANDLEGA ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ NOTA
LYFIÐ. Í HONUM ERU MIKILVÆGAR
UPPLÝSINGAR.
-
Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann
síðar.
-
Leitið til læknisins eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari
upplýsingum.
-
Þessu lyfi hefur verið ávísað til persónulegra nota. Ekki má
gefa það öðrum. Það getur valdið
þeim skaða, jafnvel þótt um sömu sjúkdómseinkenni sé að
ræða.
-
Látið lækninn eða lyfjafræðing vita um allar aukaverkanir.
Þetta gildir einnig um aukaverkanir
sem ekki er minnst á í þessum fylgiseðli. Sjá kafla 4.
Í FYLGISEÐLINUM ERU EFTIRFARANDI KAFLAR
:
1.
Upplýsingar um Escitalopram Bluefish og við hverju það er notað
2.
Áður en byrjað er að nota Escitalopram Bluefish
3.
Hvernig nota á Escitalopram Bluefish
4.
Hugsanlegar aukaverkanir
5.
Hvernig geyma á Escitalopram Bluefish
6.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
1.
UPPLÝSINGAR UM ESCITALOPRAM BLUEFISH OG VIÐ HVERJU ÞAÐ ER NOTAÐ
Escitalopram Bluefish inniheldur virka efnið escitalopram.
Escitalopram Bluefish tilheyrir flokki
þunglyndislyfja sem kallast sértækir
serótónínendurupptökuhemlar (SSRI lyf). Þessi lyf verka á
serótónínkerfið í heilanum með því að auka magn
serótóníns.
Escitalopram Bluefish inniheldur escitalopram og er notað til að
meðhöndla þunglyndi (alvarleg
þunglyndisköst) og kvíðaraskanir (s.s. felmtursröskun, með eða
án víðáttufælni, félagsfælni,
þráhyggju- og árátturöskun).
Það geta liðið nokkrar vikur áður en þér fer að líða betur.
Haltu áfram að nota Escitalopram Bluefish,
jafnvel þó það taki einhvern tíma áður en þér finnst
ástandið batna.
Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki.
2.
ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ NOTA ESCITA
                                
                                阅读完整的文件
                                
                            

产品特点

                                1
SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS
1.
HEITI LYFS
Escitalopram Bluefish 5 mg filmuhúðaðar töflur
Escitalopram Bluefish 10 mg filmuhúðaðar töflur
Escitalopram Bluefish 15 mg filmuhúðaðar töflur
2.
INNIHALDSLÝSING
Escitalopram Bluefish 5 mg: Hver tafla inniheldur 5 mg af
escitaloprami (sem oxalat)
Escitalopram Bluefish 10 mg: Hver tafla inniheldur 10 mg af
escitaloprami (sem oxalat)
Escitalopram Bluefish 15 mg: Hver tafla inniheldur 15 mg af
escitaloprami (sem oxalat)
Sjá lista yfir öll hjálparefni í kafla 6.1
3.
LYFJAFORM
Filmuhúðuð tafla.
Escitalopram Bluefish 5 mg: Hvít til beinhvít, kringlótt,
tvíkúpt, filmuhúðuð tafla með skábrúnum,
u.þ.b. 5,2 mm að stærð, með „J“ ígreypt á annarri hliðinni
og „1“ á hinni hliðinni.
Escitalopram Bluefish 10 mg: Hvít til beinhvít, sporöskjulaga,
tvíkúpt, filmuhúðuð tafla með
deiliskoru, u.þ.b. 7,9 x 5,4 mm að stærð, með „J“ ígreypt á
annarri hliðinni og „2“ á hinni hliðinni.
Escitalopram Bluefish 15 mg: Hvít til beinhvít, sporöskjulaga,
tvíkúpt, filmuhúðuð tafla með
deiliskoru, u.þ.b. 9,8 x 6,2 mm að stærð, með „J“ ígreypt á
annarri hliðinni og „3“ í hinni hliðinni.
10 mg og 15 mg töflunum má skipta í jafna skammta.
4.
KLÍNÍSKAR UPPLÝSINGAR
4.1
ÁBENDINGAR
Meðferð við alvarlegum þunglyndislotum.
Meðferð við felmtursröskun (panic disorder), með eða án
víðáttufælni.
Meðferð við félagsfælni.
Meðferð við almennri kvíðaröskun.
Meðferð við þráhyggju– og árátturöskun.
4.2
SKAMMTAR OG LYFJAGJÖF
Skammtar
Ekki hefur verið sýnt fram á öryggi notkunar skammta stærri en 20
mg.
_Alvarlegar þunglyndislotur _
Venjulegur skammtur er 10 mg einu sinni á dag. Auka má skammtinn í
að hámarki 20 mg á dag, í
samræmi við einstaklingsbundna svörun sjúklings.
Venjulega tekur 2-4 vikur að fá fram verkun við þunglyndi. Eftir
að einkennin hverfa er meðferð í að
minnsta kosti 6 mánuði nauðsynleg til að tryggja svörunina.
2
_Felmtursröskun
                                
                                阅读完整的文件