Rabeprazol Medical Valley Magasýruþolin tafla 10 mg

Ülke: İzlanda

Dil: İzlandaca

Kaynak: LYFJASTOFNUN (Icelandic Medicines Agency)

şimdi satın al

Ürün özellikleri Ürün özellikleri (SPC)
14-02-2023

Aktif bileşen:

Rabeprazolum natríum

Mevcut itibaren:

Medical Valley Invest AB

ATC kodu:

A02BC04

INN (International Adı):

Rabeprazolum

Doz:

10 mg

Farmasötik formu:

Magasýruþolin tafla

Reçete türü:

(R) Lyfseðilsskylt

Ürün özeti:

506276 Þynnupakkning Ál/álþynnur í öskju

Yetkilendirme durumu:

Markaðsleyfi útgefið

Yetkilendirme tarihi:

2017-08-08

Bilgilendirme broşürü

                                1
FYLGISEÐILL: UPPLÝSINGAR FYRIR NOTANDA LYFSINS
RABEPRAZOL MEDICAL VALLEY 10 MG MAGASÝRUÞOLNAR TÖFLUR
RABEPRAZOL MEDICAL VALLEY 20 MG MAGASÝRUÞOLNAR TÖFLUR
rabeprazolnatríum
LESIÐ ALLAN FYLGISEÐILINN VANDLEGA ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ NOTA
LYFIÐ. Í HONUM ERU MIKILVÆGAR
UPPLÝSINGAR.
-
Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann
síðar.
-
Leitið til læknisins eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari
upplýsingum.
-
Þessu lyfi hefur verið ávísað til persónulegra nota. Ekki má
gefa það öðrum. Það getur valdið
þeim skaða, jafnvel þótt um sömu sjúkdómseinkenni sé að
ræða.
-
Látið lækninn eða lyfjafræðing vita um allar aukaverkanir.
Þetta gildir einnig um aukaverkanir
sem ekki er minnst á í þessum fylgiseðli. Sjá kafla 4.
Í FYLGISEÐLINUM ERU EFTIRFARANDI KAFLAR
:
1.
Upplýsingar um Rabeprazol Medical Valley og við hverju það er
notað
2.
Áður en byrjað er að nota Rabeprazol Medical Valley
3.
Hvernig nota á Rabeprazol Medical Valley
4.
Hugsanlegar aukaverkanir
5.
Hvernig geyma á Rabeprazol Medical Valley
6.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
1.
UPPLÝSINGAR UM RABEPRAZOL MEDICAL VALLEY OG VIÐ HVERJU ÞAÐ ER
NOTAÐ
Rabeprazol Medial Valley magasýruþolnar töflur innihalda virka
efnið rabeprazolnatríum sem tilheyrir
flokki lyfja sem nefnast prótónpumpuhemlar.
Þau verka með því að minnka magn sýru sem myndast í maganum.
Rabeprazol Medical Valley magasýruþolnar töflur eru notaðar við
eftirtöldum sjúkdómum:
-
Vélindabakflæði, sem getur innifalið brjóstsviða.
Vélindabakflæði verður þegar sýra og matur
sleppur úr maga í vélinda.
-
Sár í maga eða efri hluta þarma. Þú færð einnig sýklalyf ef
sárin eru sýkt af bakteríu sem nefnist
Helicobacter pylori (H. Pylori). Samhliðanotkun Rabeprazol Medical
Valley og sýklalyfja
upprætir sýkinguna og græðir sárin. Það stöðvar einnig
endurkomu sýkingarinnar og sára.
-
Zollinger-Ellison heilkenni þegar of mikil sýra myndast í maga.
Leitið ti
                                
                                Belgenin tamamını okuyun
                                
                            

Ürün özellikleri

                                1
SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS
1.
HEITI LYFS
Rabeprazol Medical Valley 10 mg magasýruþolnar töflur
Rabeprazol Medical Valley 20 mg magasýruþolnar töflur
2.
INNIHALDSLÝSING
Hver magasýruþolin tafla inniheldur 10 mg af rabeprazolnatríum, sem
jafngildir 9,42 mg af
rabeprazoli.
Hver magasýruþolin tafla inniheldur 20 mg af rabeprazolnatríum, sem
jafngildir 18,85 mg af
rabeprazoli.
Sjá lista yfir öll hjálparefni í kafla 6.1.
_ _
_ _
3.
LYFJAFORM
Magasýruþolin tafla.
Rabeprazol Medical Valley 10 mg magasýruþolin tafla: bleik,
filmuhúðuð, tvíkúpt tafla.
Rabeprazol Medical Valley 20 mg magasýruþolin tafla: gul,
filmuhúðuð, tvíkúpt tafla.
4.
KLÍNÍSKAR UPPLÝSINGAR
4.1
ÁBENDINGAR
Rabeprazol Medical Valley er ætlað til meðhöndlunar á:
•
Virku skeifugarnasári
•
Virku góðkynja magasári
•
Einkennum bakflæðissjúkdóms frá maga í vélinda með fleiðri
eða sárum (GORD)
•
Einkennum í meðallagi alvarlegs til mjög alvarlegs
bakflæðissjúkdóms frá maga í vélinda
(GORD viðhaldsmeðferð)
•
Zollinger-Ellison heilkenni
•
Samhliða sýklalyfjameðferð til upprætingar
_Helicobacter pylori _
hjá sjúklingum með ætisár
(peptic ulcer). Sjá kafla 4.2
4.2
SKAMMTAR OG LYFJAGJÖF
Skammtar
Fullorðnir/aldraðir:
_Virkt skeifugarnasár og virkt góðkynja magasár:_
Ráðlagður skammtur til inntöku við bæði virku
skeifugarnarsári og virku góðkynja magasári er 20 mg sem skal taka
inn einu sinni á sólarhring, að
morgni.
Flestir sjúklingar með virkt skeifugarnarsár ná bata innan
fjögurra vikna. Sumir sjúklingar geta hins
vegar þurft meðferð í fjórar vikur til viðbótar til að ná
bata. Flestir sjúklingar með virkt góðkynja
magasár ná bata innan sex vikna. En sumir sjúklingar geta hins
vegar þurft sex vikna meðferð til
viðbótar til að ná bata.
_Bakflæðissjúkdómur frá maga í vélinda með fleiðri eða
sárum (GORD):_
Ráðlagður skammtur til
inntöku er 20 mg einu sinni á sólarhring í fjórar til átta
vikur.
2
_Langtímam
                                
                                Belgenin tamamını okuyun