Nicotinell Mint Munnsogstafla 1 mg

Country: Исланд

Језик: Исландски

Извор: LYFJASTOFNUN (Icelandic Medicines Agency)

Купи Сада

Активни састојак:

Nicotinum bítartrat

Доступно од:

Haleon Denmark ApS

АТЦ код:

N07BA01

INN (Међународно име):

Nicotinum

Дозирање:

1 mg

Фармацеутски облик:

Munnsogstafla

Тип рецептора:

(L) Ekki lyfseðilsskylt

Резиме производа:

124356 Þynnupakkning ; 090607 Þynnupakkning

Статус ауторизације:

Markaðsleyfi útgefið

Датум одобрења:

2000-04-18

Информативни летак

                                1
FYLGISEÐILL: UPPLÝSINGAR FYRIR NOTANDA LYFSINS
NICOTINELL MINT 1 MG MUNNSOGSTÖFLUR
nikótín
LESIÐ ALLAN FYLGISEÐILINN VANDLEGA ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ NOTA
LYFIÐ. Í HONUM ERU MIKILVÆGAR
UPPLÝSINGAR.
Alltaf skal nota lyfið nákvæmlega eins og lýst er í þessum
fylgiseðli eða eins og læknirinn eða
lyfjafræðingur hefur mælt fyrir um.
-
Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann
síðar.
-
Leitið til lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum eða
ráðgjöf.
-
Látið lækninn eða lyfjafræðing vita um allar aukaverkanir.
Þetta gildir einnig um aukaverkanir
sem ekki er minnst á í þessum fylgiseðli. Sjá kafla 4.
-
Leitið til læknis ef þú þarft enn að taka Nicotinell
munnsogstöflur eftir 9 mánaða notkun.
Í FYLGISEÐLINUM ERU EFTIRFARANDI KAFLAR
:
1.
Upplýsingar um Nicotinell Mint og við hverju það er notað
2.
Áður en byrjað er að nota Nicotinell Mint
3.
Hvernig nota á Nicotinell Mint
4.
Hugsanlegar aukaverkanir
5.
Hvernig geyma á Nicotinell Mint
6.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
1.
UPPLÝSINGAR UM NICOTINELL MINT OG VIÐ HVERJU ÞAÐ ER NOTAÐ
Nicotinell Mint tilheyra flokki lyfja sem notaður er sem
hjálpartæki þegar verið er að venja sig af
reykingum. Nicotinell Mint munnsogstöflur innihalda virka efnið
nikótín.
Nicotinell Mint munnsogstöflur eru fáanlegar í tveim styrkleikum (1
og 2 mg). Þessi fylgiseðill gildir
fyrir Nicotinell Mint 1 mg munnsogstöflur.
Nicotinell Mint munnsogstöflur innihalda nikótín sem er eitt af
innihaldsefnum tóbaks.
Þegar taflan er sogin losnar nikótínið hægt og frásogast í
gegnum slímhúð í munni.
Þetta lyf er notað til að hjálpa einstaklingum að hætta að
reykja. Nikótínið í Nicotinell
munnsogstöflum dregur úr fráhvarfseinkennum og reykingaþörf,
þegar þú hættir að reykja eða
tímabundið meðan dregið er úr reykingum til að auðvelda það
að hætta. Með því að draga úr
fráhvarfseinkennum og reykingaþörf vinnur Nicotinell Mint gegn
bakslagi h
                                
                                Прочитајте комплетан документ
                                
                            

Карактеристике производа

                                1
SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS
1.
HEITI LYFS
Nicotinell Mint 1 mg munnsogstöflur.
2.
INNIHALDSLÝSING
Hver munnsogstafla inniheldur:
Virkt efni: 1 mg nikótín (sem samsvarar 3,072 mg af
nikótín-bítartrat-tvíhýdrati).
Hjálparefni með þekkta verkun: Aspartam (0,01 g) og maltítól (0,9
g).
Sjá lista yfir öll hjálparefni í kafla 6.1.
3.
LYFJAFORM
Munnsogstafla.
Hvítar, kringlóttar og tvíkúptar munnsogstöflur með
myntubragði.
4.
KLÍNÍSKAR UPPLÝSINGAR
4.1
ÁBENDINGAR
Til meðferðar á tóbaksfíkn en lyfið dregur úr
fráhvarfseinkennum og nikótínþörf (sjá kafla 5.1) og
auðveldar þar með að hætta að nota tóbak eða til að draga
tímabundið úr reykingum hjá þeim sem eru
reiðubúnir til að hætta. Takmarkið er að hætta alveg
tóbaksnotkun.
Ráðgjöf og stuðningur við sjúkling eykur líkur á árangri.
4.2
SKAMMTAR OG LYFJAGJÖF
Skammtar
Nicotinell Mint 1 mg munnsogstöflur má nota einar sér
_(a)_
eða í samsettri meðferð með Nicotinell
forðaplástrum
_(b)_
.
_ _
_Fullorðnir og aldraðir _
(A)
MEÐFERÐ MEÐ NICOTINELL MUNNSOGSTÖFLUM EINUM SÉR
Nicotinell Mint 1 mg munnsogstöflur eru ráðlagðar reykingafólki
sem er lítið eða miðlungi mikið háð
nikótíni. Þær eru ekki ráðlagðar reykingafólki sem er mjög
háð nikótíni.
Ákjósanlegur styrkleik er valinn samkvæmt eftirfarandi töflu:
LÍTIL EÐA MIÐLUNGI
MIKIL ÁVANABINDING
MIÐLUNGI MIKIL EÐA MIKIL
ÁVANABINDING
MIKIL EÐA MJÖG
MIKIL
ÁVANABINDING
2
Færri en 20 sígarettur
á sólarhring
20 til 30 sígarettur á sólarhring
Fleiri en 30
sígarettur á
sólarhring
Meðferð með
Nicotinell Mint
munnsogstöflum
einum sér
Æskilegt er að nota
lægri styrkleikann
(1 mg munnsogstafla)
Nota má lægri (1 mg
munnsogstafla)
eða hærri (2 mg munnsogstafla)
styrkleikann eftir einkennum
sjúklinga og þeirra vali.
Æskilegt er að nota
hærri styrkleikann
(2 mg
munnsogstafla)
Verði vart við aukaverkanir þegar hærri styrkleikinn er notaður
(2 mg munnsogstafla), skal íhuga að
skipta yfir 
                                
                                Прочитајте комплетан документ
                                
                            

Обавештења о претрази у вези са овим производом

Погледајте историју докумената