Lyrica (Lyfjaver) Hart hylki 25 mg

Krajina: Island

Jazyk: islandčina

Zdroj: LYFJASTOFNUN (Icelandic Medicines Agency)

Kúpte ho teraz

Príbalový leták Príbalový leták (PIL)
18-01-2023

Aktívna zložka:

Pregabalinum INN

Dostupné z:

Lyfjaver ehf.

ATC kód:

N02BF02

INN (Medzinárodný Name):

pregabalin

Dávkovanie:

25 mg

Forma lieku:

Hart hylki

Typ predpisu:

(R) Lyfseðilsskylt

Prehľad produktov:

541493 Þynnupakkning PVC/álþynnur V0685

Stav Autorizácia:

Samhliða innflutningur leyfi

Príbalový leták

                                FYLGISEÐILL: UPPLÝSINGAR FYRIR NOTANDA LYFSINS
LYRICA 25 MG HÖRÐ HYLKI
LYRICA 50 MG HÖRÐ HYLKI
LYRICA 75 MG HÖRÐ HYLKI
LYRICA 100 MG HÖRÐ HYLKI
LYRICA 150 MG HÖRÐ HYLKI
LYRICA 200 MG HÖRÐ HYLKI
LYRICA 225 MG HÖRÐ HYLKI
LYRICA 300 MG HÖRÐ HYLKI
pregabalín
LESIÐ ALLAN FYLGISEÐILINN VANDLEGA ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ TAKA
LYFIÐ. Í HONUM ERU MIKILVÆGAR
UPPLÝSINGAR.
-
Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann
síðar.
-
Leitið til læknisins eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari
upplýsingum.
-
Þessu lyfi hefur verið ávísað til persónulegra nota. Ekki má
gefa það öðrum. Það getur valdið
þeim skaða, jafnvel þó um sömu sjúkdómseinkenni sé að ræða.
-
Látið lækninn eða lyfjafræðing vita um allar aukaverkanir.
Þetta gildir einnig um aukaverkanir
sem ekki er minnst á í þessum fylgiseðli. Sjá kafla 4.
Í FYLGISEÐLINUM ERU EFTIRFARANDI KAFLAR:
1.
Upplýsingar um Lyrica og við hverju það er notað
2.
Áður en byrjað er að nota Lyrica
3.
Hvernig nota á Lyrica
4.
Hugsanlegar aukaverkanir
5.
Hvernig geyma á Lyrica
6.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
1.
UPPLÝSINGAR UM LYRICA OG VIÐ HVERJU ÞAÐ ER NOTAÐ
Lyrica tilheyrir flokki lyfja sem eru notuð við meðferð við
flogaveiki, taugaverkjum og almennri
kvíðaröskun hjá fullorðnum.
ÚTLÆGIR OG MIÐLÆGIR TAUGAVERKIR:
Lyrica er notað til meðhöndlunar á langvarandi verkjum af
völdum taugaskemmda. Fjöldi mismunandi sjúkdóma getur valdið
útlægum taugaverkjum, svo sem
sykursýki eða ristill. Verkjatilfinningunni hefur verið lýst sem:
hita, sviða, slætti, skoti, sting, nístandi,
krampa, verk, dofa, tilfinningaleysi, náladofa. Skapbreytingar,
svefntruflanir og þróttleysi (þreyta) geta
einnig fylgt útlægum og miðlægum taugaverkjum og þeir geta haft
áhrif á líkamlega og félagslega
virkni sem og almenn lífsgæði.
FLOGAVEIKI:
Lyrica er notað til meðhöndlunar á sérstakri tegund af flogaveiki
(staðflog með eða án
síðkominna alfloga – flogakö
                                
                                Prečítajte si celý dokument
                                
                            

Súhrn charakteristických

                                SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS
1.
HEITI LYFS
Lyrica (Lyfjaver) 25 mg hörð hylki.
Lyrica (Lyfjaver) 75 mg hörð hylki.
Lyrica (Lyfjaver) 150 mg hörð hylki.
Lyrica (Lyfjaver) 300 mg hörð hylki.
2.
INNIHALDSLÝSING
Lyrica (Lyfjaver) 25 mg hörð hylki.
Hvert hart hylki inniheldur 25 mg pregabalín
Lyrica (Lyfjaver) 75 mg hörð hylki.
Hvert hart hylki inniheldur 75 mg pregabalín
Lyrica (Lyfjaver) 150 mg hörð hylki.
Hvert hart hylki inniheldur 150 mg pregabalín
Lyrica (Lyfjaver) 300 mg hörð hylki.
Hvert hart hylki inniheldur 300 mg pregabalín
Hjálparefni með þekkta verkun
Lyrica (Lyfjaver) 25 mg hörð hylki.
Hvert hart hylki inniheldur einnig 35 mg laktósaeinhýdrat
Lyrica (Lyfjaver) 75 mg hörð hylki.
Hvert hart hylki inniheldur einnig 8,25 mg laktósaeinhýdrat
Lyrica (Lyfjaver) 150 mg hörð hylki.
Hvert hart hylki inniheldur einnig 16,50 mg laktósaeinhýdrat
Lyrica (Lyfjaver) 300 mg hörð hylki.
Hvert hart hylki inniheldur einnig 33 mg laktósaeinhýdrat
Sjá lista yfir öll hjálparefni í kafla 6.1.
3.
LYFJAFORM
Hylki, hart.
Lyrica (Lyfjaver) 25 mg hörð hylki.
Hvítt, merkt „Pfizer“ á hettuna og „PGN 25“ á bolinn með
svörtu bleki.
Lyrica (Lyfjaver) 75 mg hörð hylki.
Hvítt og appelsínugult, merkt „Pfizer“ á hettuna og „PGN
75“ á bolinn með svörtu bleki.
Lyrica (Lyfjaver) 150 mg hörð hylki.
Hvítt, merkt „Pfizer“ á hettuna og „PGN 150“ á bolinn með
svörtu bleki.
Lyrica (Lyfjaver) 300 mg hörð hylki.
Hvítt og appelsínugult, merkt „Pfizer“ á hettuna og „PGN
300” á bolinn með svörtu bleki.
4.
KLÍNÍSKAR UPPLÝSINGAR
Sjá SmPC Lyrica (Pfizer Europe MA EEIG).
5.
LYFJAFRÆÐILEGAR UPPLÝSINGAR
Sjá SmPC Lyrica (Pfizer Europe MA EEIG).
6.
LYFJAGERÐARFRÆÐILEGAR UPPLÝSINGAR
6.1
HJÁLPAREFNI
Lyrica 25 mg, 150 mg hörð hylki.
Innihald hylkja:
Laktósi
Maíssterkja
Talkúm.
Hylkið sjálft:
Matarlím
Títantvíoxíð (E171)
Natríumlárýlsúlfat
Vatnsfrí kísilkvoða
Hreinsað vatn
Merkiblek:
Shellac
Svart járnoxíð (E172)
Própýlengl
                                
                                Prečítajte si celý dokument
                                
                            

Vyhľadávajte upozornenia súvisiace s týmto produktom