Levonorgestrel Apofri Tafla 1,5 mg

Krajina: Island

Jazyk: islandčina

Zdroj: LYFJASTOFNUN (Icelandic Medicines Agency)

Kúpte ho teraz

Príbalový leták Príbalový leták (PIL)
21-08-2023

Aktívna zložka:

Levonorgestrelum INN

Dostupné z:

Apofri AB

ATC kód:

G03AD01

INN (Medzinárodný Name):

Levonorgestrelum

Dávkovanie:

1,5 mg

Forma lieku:

Tafla

Typ predpisu:

(L) Ekki lyfseðilsskylt

Prehľad produktov:

448379 Þynnupakkning PVC/PVDC/ál

Stav Autorizácia:

Markaðsleyfi útgefið

Dátum Autorizácia:

2019-10-29

Príbalový leták

                                1
FYLGISEÐILL: UPPLÝSINGAR FYRIR NOTANDA LYFSINS
LEVONORGESTREL APOFRI 1,5 MG TÖFLUR
levonorgestrel
LESIÐ ALLAN FYLGISEÐILINN VANDLEGA ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ NOTA
LYFIÐ. Í HONUM ERU MIKILVÆGAR
UPPLÝSINGAR.
Alltaf skal nota lyfið nákvæmlega eins og lýst er í þessum
fylgiseðli eða eins og læknirinn eða
lyfjafræðingur hefur mælt fyrir um.
-
Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann
síðar.
-
Leitið til lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum eða
ráðgjöf.
-
Látið lækninn eða lyfjafræðing vita um allar aukaverkanir.
Þetta gildir einnig um aukaverkanir
sem ekki er minnst á í þessum fylgiseðli. Sjá kafla 4.
Í FYLGISEÐLINUM ERU EFTIRFARANDI KAFLAR
:
1.
Upplýsingar um Levonorgestrel Apofri og við hverju það er notað
2.
Áður en byrjað er að nota Levonorgestrel Apofri
3.
Hvernig nota á Levonorgestrel Apofri
4.
Hugsanlegar aukaverkanir
5.
Hvernig geyma á Levonorgestrel Apofri
6.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
1.
UPPLÝSINGAR UM LEVONORGESTREL APOFRI OG VIÐ HVERJU ÞAÐ ER NOTAÐ
Levonorgestrel Apofri er neyðargetnaðarvörn sem nota á innan 72
klst. (3 daga) frá óvörðum
samförum eða ef getnaðarvörn sem verið er að nota bregst.
Það á við í eftirfarandi tilvikum:
-
Þegar engin getnaðarvörn var notuð við samfarir.
-
Þegar getnaðarvörn var rangt notuð, t.d. ef smokkur rifnaði, rann
af eða var notaður á rangan
hátt, ef leghringur eða hetta færðist úr stað, rifnaði, var
ónýt fyrir eða tekin úr of snemma, ef
ekki tókst að rjúfa samfarir (t.d. sæði sprautast inn í leggöng
eða á ytri kynfæri).
Levonorgestrel Apofri inniheldur samtengt efni, levonorgestrel, sem
líkir eftir hormóni í líkamanum.
Það kemur í veg fyrir um 85% væntanlegra þungana þegar það er
tekið innan 72 klst. frá óvörðum
samförum. Það mun ekki koma í veg fyrir þungun í öllum tilvikum
og er áhrifaríkara ef það er tekið
eins fljótt og hægt er eftir óvarðar samfarir. Betra er að taka
það innan 
                                
                                Prečítajte si celý dokument
                                
                            

Súhrn charakteristických

                                1
SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS
1.
HEITI LYFS
Levonorgestrel Apofri 1,5 mg töflur.
2.
INNIHALDSLÝSING
Hver tafla inniheldur 1,5 mg af levonorgestreli.
Hjálparefni með þekkta verkun: 43 mg af laktósa einhýdrati.
Sjá lista yfir öll hjálparefni í kafla 6.1.
3.
LYFJAFORM
Tafla.
Kringlótt, hvít tafla, u.þ.b. 6 mm í þvermál, ígreypt með
„C“ á annarri hliðinni og „1“ á hinni hliðinni.
4.
KLÍNÍSKAR UPPLÝSINGAR
4.1
ÁBENDINGAR
Neyðargetnaðarvörn ef tekin innan 72 klst. frá óvörðum
samförum eða ef getnaðarvörn sem verið er
að nota bregst
4.2
SKAMMTAR OG LYFJAGJÖF
Skammtar
Takið eina töflu eins fljótt og hægt er, helst innan 12 klst. og
eigi síðar en 72 klst. eftir óvarðar
samfarir (sjá kafla 5.1).
Ef kastað er upp innan þriggja klst. frá því að taflan er tekin
inn skal strax taka aðra töflu.
Konum sem notað hafa ensímvirkjandi lyf á síðastliðnum 4 vikum
og þurfa að nota
neyðargetnaðarvörn er ráðlagt að nota neyðargetnaðarvörn án
hormóna, þ.e. koparlykkju eða taka
tvöfaldan skammt af levonorgestreli (þ.e. 2 töflur samtímis) ef
þær geta ekki eða vilja ekki nota
koparlykkju (sjá kafla 4.5).
Levonorgestrel Apofri má taka hvenær sem er í tíðahringnum, nema
komið sé fram yfir áætlaðar
tíðablæðingar.
Eftir notkun neyðargetnaðarvarnar er ráðlagt að nota staðbundna,
hindrandi getnaðarvörn (t.d. verjur,
hettu, sæðisdrepandi efni eða leghálshúfu (cervical cap)) þar
til næstu tíðablæðingar hefjast. Notkun
levonorgestrels er ekki frábending fyrir áframhaldandi notkun á
reglulegri hormónagetnaðarvörn.
_Börn _
Notkun Levonorgestrel Apofri á ekki við sem neyðargetnaðarvörn
hjá börnum sem ekki eru orðin
kynþroska.
Lyfjagjöf
Til inntöku.
2
4.3
FRÁBENDINGAR
Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna sem talin
eru upp í kafla 6.1.
4.4
SÉRSTÖK VARNAÐARORÐ OG VARÚÐARREGLUR VIÐ NOTKUN
Neyðargetnaðarvörn skal einungis notuð í sérstökum tilvikum.
Hún á undir engum kringums
                                
                                Prečítajte si celý dokument
                                
                            

Vyhľadávajte upozornenia súvisiace s týmto produktom