Bloxazoc Forðatafla 25 mg

Страна: Исландия

Язык: исландский

Источник: LYFJASTOFNUN (Icelandic Medicines Agency)

Купи это сейчас

Активный ингредиент:

Metoprololum súkkínat

Доступна с:

KRKA d.d. Novo mesto

код АТС:

C07AB02

ИНН (Международная Имя):

Metoprololum

дозировка:

25 mg

Фармацевтическая форма:

Forðatafla

Тип рецепта:

(R) Lyfseðilsskylt

Обзор продуктов:

500402 Þynnupakkning PVC/PE/PVDC þynna - álþynna V0050

Статус Авторизация:

Markaðsleyfi útgefið

Дата Авторизация:

2017-03-21

тонкая брошюра

                                1
FYLGISEÐILL: UPPLÝSINGAR FYRIR NOTANDA LYFSINS
BLOXAZOC 25 MG FORÐATÖFLUR
BLOXAZOC 50 MG FORÐATÖFLUR
BLOXAZOC 100 MG FORÐATÖFLUR
BLOXAZOC 200 MG FORÐATÖFLUR
metoprolol succinat
LESIÐ ALLAN FYLGISEÐILINN VANDLEGA ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ NOTA
LYFIÐ. Í HONUM ERU MIKILVÆGAR
UPPLÝSINGAR.
-
Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann
síðar.
-
Leitið til læknisins eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari
upplýsingum um lyfið.
-
Þessu lyfi hefur verið ávísað til persónulegra nota. Ekki má
gefa það öðrum. Það getur valdið
þeim skaða, jafnvel þótt um sömu sjúkdómseinkenni sé að
ræða.
-
Látið lækninn eða lyfjafræðing vita um allar aukaverkanir.
Þetta gildir einnig um aukaverkanir
sem ekki er minnst á í þessum fylgiseðli. Sjá kafla 4.
Í FYLGISEÐLINUM ERU EFTIRFARANDI KAFLAR
:
1.
Upplýsingar um Bloxazoc og við hverju það er notað
2.
Áður en byrjað er að nota Bloxazoc
3.
Hvernig nota á Bloxazoc
4.
Hugsanlegar aukaverkanir
5.
Hvernig geyma á Bloxazoc
6.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
1.
UPPLÝSINGAR UM BLOXAZOC OG VIÐ HVERJU ÞAÐ ER NOTAÐ
Bloxazoc tilheyrir flokki lyfja sem kallast beta-blokkar. Metoprolol
minnkar áhrif streituhormóna á
hjartað í tengslum við líkamlegt og andlegt álag. Þetta veldur
því að hjartað slær hægar (hægir á
hjartslætti).
Bloxazoc er notað sem
MEÐFERÐ VIÐ
:
-
háum blóðþrýstingi (háþrýstingi),
-
þrýstingsverk fyrir brjósti vegna ónógs súrefnisflæðis til
hjartans (hjartaöng),
-
óreglulegum hjartslætti (hjartsláttartruflunum),
-
hjartsláttarónotum (að finna fyrir hjartslættinum) af völdum
sjúkdóms í hjarta af starfrænum
toga (ekki vefrænum),
-
stöðugri hjartabilun með einkennum (svo sem mæði eða bólga á
ökklum), ásamt öðrum lyfjum
við hjartabilun.
Bloxazoc er notað til
AÐ FYRIRBYGGJA
:
-
frekari hjartaáföll eða skemmdir á hjartavöðva eftir
hjartaáfall,
-
mígreni.
Bloxazoc er notað sem meðferð við háum blóðþrýstingi hjá

                                
                                Прочитать полный документ
                                
                            

Характеристики продукта

                                1
SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS
1.
HEITI LYFS
Bloxazoc 25 mg forðatöflur.
Bloxazoc 50 mg forðatöflur.
Bloxazoc 100 mg forðatöflur.
Bloxazoc 200 mg forðatöflur.
2.
INNIHALDSLÝSING
Hver forðatafla inniheldur 23,75 mg af metoprolol succinati, sem
jafngildir 25 mg af metoprolol
tartrati.
Hver forðatafla inniheldur 47,5 mg af metoprolol succinati, sem
jafngildir 50 mg af metoprolol tartrati.
Hver forðatafla inniheldur 95 mg af metoprolol succinati, sem
jafngildir 100 mg af metoprolol tartrati.
Hver forðatafla inniheldur 190 mg af metoprolol succinati, sem
jafngildir 200 mg af metoprolol
tartrati.
Sjá lista yfir öll hjálparefni í kafla 6.1.
3.
LYFJAFORM
Forðatafla.
25 mg: hvítar til nánast hvítar, egglaga, tvíkúptar,
filmuhúðaðar töflur með deiliskoru á annarri hlið
töflunnar (stærð 8,5 mm x 4,5 mm). Öðru megin við deiliskoruna
er merkið C greypt í töfluna og
hinum megin er merkið 1 greypt í töfluna.
Töflunni má skipta í jafna skammta.
_ _
50 mg: hvítar til nánast hvítar, egglaga, lítillega tvíkúptar,
filmuhúðaðar töflur með deiliskoru á
annarri hlið töflunnar (stærð 10,5 mm x 5,5 mm). Öðru megin við
deiliskoruna er merkið C greypt í
töfluna og hinum megin er merkið 2 greypt í töfluna.
Deiliskoran er eingöngu til þess að hægt sé að skipta töflunni
svo auðveldara sé að kyngja henni en
ekki til þess að skipta henni í jafna skammta.
100 mg: hvítar til nánast hvítar, egglaga, tvíkúptar,
filmuhúðaðar töflur með deiliskoru á annarri hlið
töflunnar (stærð 13 mm x 8 mm). Öðru megin við deiliskoruna er
merkið C greypt í töfluna og hinum
megin er merkið 3 greypt í töfluna.
Deiliskoran er eingöngu til þess að hægt sé að skipta töflunni
svo auðveldara sé að kyngja henni en
ekki til þess að skipta henni í jafna skammta.
200 mg: hvítar til nánast hvítar, hylkislaga, filmuhúðaðar
töflur með deiliskoru á báðum hliðum
töflunnar (stærð 19 mm x 8 mm). Á annarri hlið töflunnar er
merkið C greypt í tö
                                
                                Прочитать полный документ
                                
                            

Поиск оповещений, связанных с этим продуктом

Просмотр истории документов