Montelukast ratiopharm (Montelukast Teva) Filmuhúðuð tafla 10 mg

País: Islândia

Língua: islandês

Origem: LYFJASTOFNUN (Icelandic Medicines Agency)

Compre agora

Ingredientes ativos:

Montelukastum natríum

Disponível em:

Teva Sweden AB

Código ATC:

R03DC03

DCI (Denominação Comum Internacional):

Montelukastum

Dosagem:

10 mg

Forma farmacêutica:

Filmuhúðuð tafla

Tipo de prescrição:

(R) Lyfseðilsskylt

Resumo do produto:

501950 Þynnupakkning Ál - álþynna V0490

Status de autorização:

Markaðsleyfi útgefið

Data de autorização:

2012-11-22

Folheto informativo - Bula

                                1
FYLGISEÐILL: UPPLÝSINGAR FYRIR NOTANDA LYFSINS
MONTELUKAST RATIOPHARM 10 MG FILMUHÚÐAÐAR TÖFLUR
montelukast
LESIÐ ALLAN FYLGISEÐILINN VANDLEGA ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ NOTA
LYFIÐ. Í HONUM ERU MIKILVÆGAR
UPPLÝSINGAR.
-
Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann
síðar.
-
Leitið til læknisins eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari
upplýsingum.
-
Þessu lyfi hefur verið ávísað til persónulegra nota. Ekki má
gefa það öðrum. Það getur valdið
þeim skaða, jafnvel þótt um sömu sjúkdómseinkenni sé að
ræða.
-
Látið lækninn eða lyfjafræðing vita um allar aukaverkanir.
Þetta gildir einnig um aukaverkanir
sem ekki er minnst á í þessum fylgiseðli. Sjá kafla 4.
Í FYLGISEÐLINUM ERU EFTIRFARANDI KAFLAR
:
1.
Upplýsingar um Montelukast ratiopharm og við hverju það er notað
2.
Áður en byrjað er að nota Montelukast ratiopharm
3.
Hvernig nota á Montelukast ratiopharm
4.
Hugsanlegar aukaverkanir
5.
Hvernig geyma á Montelukast ratiopharm
6.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
1.
UPPLÝSINGAR UM MONTELUKAST RATIOPHARM OG VIÐ HVERJU ÞAÐ ER NOTAÐ
HVAÐ MONTELUKAST RATIOPHARM ER
Montelukast ratiopharm eru leukotríenviðtakahemill, sem hamlar
áhrifum efna sem nefnast leukotríen.
HVERNIG MONTELUKAST RATIOPHARM VIRKAR
Leukotríen valda þrota og þrengingu í öndunarvegi í lungum og
valda einnig ofnæmiseinkennum.
Með hömlun leukotríena draga Montelukast ratiopharm úr einkennum
astma, taka þátt í að hafa stjórn
á astma og draga úr einkennum árstíðabundins ofnæmis (einnig
þekkt sem ofnæmiskvef og
árstíðabundin ofnæmisbólga í nefi).
HVENÆR Á AÐ NOTA MONTELUKAST RATIOPHARM
Læknirinn hefur ávísað Montelukast ratiopharm til meðferðar við
astma hjá þér til að koma í veg fyrir
astmaeinkenni á nóttu sem degi.
-
Montelukast ratiopharm eru notaðar fyrirfullorðna og unglinga, 15
ára og eldri þegar önnur
lyfjameðferð er ófullnægjandi og þörf er á viðbótarmeðferð.
-
Montelukast ratiopharm er einnig æt
                                
                                Leia o documento completo
                                
                            

Características técnicas

                                1
SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS
1.
HEITI LYFS
Montelukast ratiopharm 10 mg filmuhúðaðar töflur.
2.
INNIHALDSLÝSING
Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 10,4 mg montelukastnatríum, sem
jafngildir 10 mg af montelukasti.
Hjálparefni með þekkta verkun:
Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 122,2 mg af laktósa (sem
laktósaeinhýdrat)
Sjá lista yfir öll hjálparefni í kafla 6.1.
3.
LYFJAFORM
Filmuhúðuð tafla.
Ljósbrúnar, kringlóttar filmuhúðaðar töflur merktar með
„93“ á annarri hliðinni og „7426“ á hinni hlið
töflunnar.
4.
KLÍNÍSKAR UPPLÝSINGAR
4.1
ÁBENDINGAR
Montelukast er ætlað til meðferðar við astma sem
viðbótarmeðferð hjá sjúklingum, 15 ára og eldri,
sem hafa vægan eða miðlungi mikinn viðvarandi astma, þegar
meðferð með barksterum til innöndunar
er ekki fullnægjandi og þegar notkun stuttverkandi β-örva „eftir
þörfum” veitir ekki fullnægjandi
klíníska meðferð við astma. Hjá þeim astmasjúklingum, 15 ára
og eldri, þar sem montelukast er ávísað
við astma, getur montelukast einnig dregið úr einkennum
árstíðarbundinnar ofnæmisbólgu í nefi.
Montelukast er einnig ætlað til fyrirbyggjandi meðferðar við
astma hjá sjúklingum, 15 ára og eldri,
þegar aðallega er um berkjusamdrátt við áreynslu að ræða.
4.2
SKAMMTAR OG LYFJAGJÖF
Skammtar
Ráðlagður skammtur handa fullorðnum og unglingum, 15 ára og
eldri, sem eru með astma eða astma
og árstíðabundna ofnæmisbólgu í nefi samtímis, er ein 10 mg
tafla á dag, tekin inn að kvöldi.
_Almennar ráðleggingar_
Lækningaleg verkun montelukasts á einkenni astma kemur fram innan
sólarhrings.. Ráðleggja skal
sjúklingum að halda áfram að nota Montelukast jafnvel þótt
astmaeinkennin hverfi og einnig á
tímabilum þegar astmaeinkennin versna.
Montelukast á ekki að nota samhliða öðrum lyfjum sem innihalda
sama virka efnið, þ.e. montelukast.
_Meðferð með montelukasti í tengslum við aðra meðferð við
astma._
Montelukasti má bæta við þá meðfer
                                
                                Leia o documento completo