Flucloxacillin WH Stungulyfs-/innrennslisstofn, lausn 1000 mg

Valsts: Īslande

Valoda: īslandiešu

Klimata pārmaiņas: LYFJASTOFNUN (Icelandic Medicines Agency)

Nopērc to tagad

Lietošanas instrukcija Lietošanas instrukcija (PIL)
25-09-2023
Produkta apraksts Produkta apraksts (SPC)
25-09-2023

Aktīvā sastāvdaļa:

Flucloxacillinum natríum

Pieejams no:

Williams & Halls ehf.*

ATĶ kods:

J01CF05

SNN (starptautisko nepatentēto nosaukumu):

Flucloxacillinum

Deva:

1000 mg

Zāļu forma:

Stungulyfs-/innrennslisstofn, lausn

Receptes veids:

(R) Lyfseðilsskylt

Produktu pārskats:

490827 Hettuglas Glass. Clear, type III glass vial

Autorizācija statuss:

Markaðsleyfi útgefið

Autorizācija datums:

2020-04-08

Lietošanas instrukcija

                                1
FYLGISEÐILL: UPPLÝSINGAR FYRIR NOTANDA LYFSINS
FLUCLOXACILLIN WH 250 MG STUNGULYFS-/INNRENNSLISSTOFN, LAUSN
FLUCLOXACILLIN WH 500 MG STUNGULYFS-/INNRENNSLISSTOFN, LAUSN
FLUCLOXACILLIN WH 1000 MG STUNGULYFS-/INNRENNSLISSTOFN, LAUSN
FLUCLOXACILLIN WH 2000 MG STUNGULYFS-/INNRENNSLISSTOFN, LAUSN
flúkloxacillín
LESIÐ ALLAN FYLGISEÐILINN VANDLEGA ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ NOTA
LYFIÐ. Í HONUM ERU MIKILVÆGAR
UPPLÝSINGAR.
-
Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann
síðar.
-
Leitið til læknisins eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari
upplýsingum.
-
Þessu lyfi hefur verið ávísað til persónulegra nota. Ekki má
gefa það öðrum. Það getur valdið
þeim skaða, jafnvel þótt um sömu sjúkdómseinkenni sé að
ræða.
-
Látið lækninn eða lyfjafræðing vita um allar aukaverkanir.
Þetta gildir einnig um aukaverkanir
sem ekki er minnst á í þessum fylgiseðli. Sjá kafla 4.
Í FYLGISEÐLINUM ERU EFTIRFARANDI KAFLAR
:
1.
Upplýsingar um Flucloxacillin WH og við hverju það er notað
2.
Áður en byrjað er að nota Flucloxacillin WH
3.
Hvernig nota á Flucloxacillin WH
4.
Hugsanlegar aukaverkanir
5.
Hvernig geyma á Flucloxacillin WH
6.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
1.
UPPLÝSINGAR UM FLUCLOXACILLIN WH OG VIÐ HVERJU ÞAÐ ER NOTAÐ
Flucloxacillin WH inniheldur virka efnið flúkloxacillín.
Flucloxacillin WH er sýklalyf sem tilheyrir flokki sýklalyfja sem
kallast beta-laktamasaþolin
penicillín. Flúkloxacillín virkar með því að drepa bakteríur
sem valda sýkingum. Það virkar aðeins á
ákveðnar tegundir baktería.
Flucloxacillin WH er notað til að meðhöndla sýkingar svo sem:
-
Sýkingar í húð og mjúkum vefjum: graftarkýli, húðbeðsbólga
(bólga í mjúkum vef undir
húðinni)
-
Sýkingar í öndunarvegum: lungnabólga, ígerð í lungum,
berkjulungnabólga
-
Sýkingar í beinum og liðum: sýkingar í beinum og beinmerg (bein-
og mergbólga), liðbólga
-
Bólga í himnum hjartans og hjartalokum (hjartaþelsbólga)
Flucloxac
                                
                                Izlasiet visu dokumentu
                                
                            

Produkta apraksts

                                1
SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS
1.
HEITI LYFS
Flucloxacillin WH 250 mg stungulyfs-/innrennslisstofn, lausn
Flucloxacillin WH 500 mg stungulyfs-/innrennslisstofn, lausn
Flucloxacillin WH 1000 mg stungulyfs-/innrennslisstofn, lausn
Flucloxacillin WH 2000 mg stungulyfs-/innrennslisstofn, lausn
2.
INNIHALDSLÝSING
Hvert hettuglas inniheldur 250 mg af flúkloxacillíni (sem
flúkloxacillín natríum einhýdrat)
Hvert hettuglas inniheldur 500 mg af flúkloxacillíni (sem
flúkloxacillín natríum einhýdrat)
Hvert hettuglas inniheldur 1000 mg af flúkloxacillíni (sem
flúkloxacillín natríum einhýdrat)
Hvert hettuglas inniheldur 2000 mg af flúkloxacillíni (sem
flúkloxacillín natríum einhýdrat)
Hjálparefni með þekkta verkun
Hvert 250 mg hettuglas inniheldur 0,55 mmól (13 mg) af natríum
Hvert 500 mg hettuglas inniheldur 1,1 mmól (25 mg) af natríum
Hvert 1000 mg hettuglas inniheldur 2,2 mmól (51 mg) af natríum
Hvert 2000 mg hettuglas inniheldur 4,4 mmól (101 mg) af
natríum
3.
LYFJAFORM
Stungulyfs-/innrennslisstofn, lausn
Hvítt eða beinhvítt duft
4.
KLÍNÍSKAR UPPLÝSINGAR
4.1
ÁBENDINGAR
Flucloxacillin WH er ætlað til meðhöndlunar eftirfarandi sýkinga
af völdum næmra sýkla, sérstaklega
_Staphylococcus aureus_
(sjá kafla 4.2 og 5.1):
-
Sýkingar í húð og mjúkum vefjum: graftarkýli, húðbeðsbólga
-
Öndunarfærasýkingar: ígerð í lungum, lungnabólga,
berkjulungnabólga
-
Sýkingar í beinum og liðum: liðbólga, bein- og mergbólga
-
Hjartaþelsbólga
Flucloxacillin WH er einnig ætlað til fyrirbyggjandi meðferðar í
skurðaðgerðum á hjarta og æðum
(gervilokur, ágræðsla slagæða) og í bæklunarlækningum
(liðlögun, beinspenging og liðskurður) vegna
ríkjandi sýkingarhættu af völdum staphylococca í þessum
skurðaðgerðum.
Taka skal tillit til opinberra leiðbeininga varðandi viðeigandi
notkun bakteríulyfja.
4.2
SKAMMTAR OG LYFJAGJÖF
Skammtar
Skammtar fara eftir aldri sjúklings, þyngd og nýrnastarfsemi sem og
a
                                
                                Izlasiet visu dokumentu