Metformin Teva B.V. Filmuhúðuð tafla 500 mg

Šalis: Islandija

kalba: islandų

Šaltinis: LYFJASTOFNUN (Icelandic Medicines Agency)

Nusipirk tai dabar

Pakuotės lapelis Pakuotės lapelis (PIL)
31-01-2024
Prekės savybės Prekės savybės (SPC)
31-01-2024

Veiklioji medžiaga:

Metforminum hýdróklóríð

Prieinama:

Teva B.V.*

ATC kodas:

A10BA02

INN (Tarptautinis Pavadinimas):

Metforminum

Dozė:

500 mg

Vaisto forma:

Filmuhúðuð tafla

Recepto tipas:

(R) Lyfseðilsskylt

Produkto santrauka:

400005 Glas HPDE-glas með pólýprópýlenloki og þurrkefni V0500

Autorizacija statusas:

Markaðsleyfi útgefið

Leidimo data:

2023-01-20

Pakuotės lapelis

                                1
FYLGISEÐILL: UPPLÝSINGAR FYRIR NOTANDA LYFSINS
METFORMIN TEVA B.V. 500 MG FILMUHÚÐAÐAR TÖFLUR
METFORMIN TEVA B.V. 850 MG FILMUHÚÐAÐAR TÖFLUR
METFORMIN TEVA B.V. 1000 MG FILMUHÚÐAÐAR TÖFLUR
metforminhýdróklóríð
LESIÐ ALLAN FYLGISEÐILINN VANDLEGA ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ NOTA
LYFIÐ. Í HONUM ERU MIKILVÆGAR
UPPLÝSINGAR.
-
Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann
síðar.
-
Leitið til læknisins eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari
upplýsingum.
-
Þessu lyfi hefur verið ávísað til persónulegra nota. Ekki má
gefa það öðrum. Það getur valdið þeim
skaða, jafnvel þótt um sömu sjúkdómseinkenni sé að ræða.
-
Látið lækninn eða lyfjafræðing vita um allar aukaverkanir.
Þetta gildir einnig um aukaverkanir sem
ekki er minnst á í þessum fylgiseðli. Sjá kafla 4.
Í FYLGISEÐLINUM ERU EFTIRFARANDI KAFLAR:
1.
Upplýsingar um Metformin Teva B.V. og við hverju það er notað
2.
Áður en byrjað er að nota Metformin Teva B.V.
3.
Hvernig nota á Metformin Teva B.V.
4.
Hugsanlegar aukaverkanir
5.
Hvernig geyma á Metformin Teva B.V.
6.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
1.
UPPLÝSINGAR UM
METFORMIN TEVA B.V. OG VIÐ HVERJU ÞAÐ ER NOTAÐ
Metformin Teva B.V. inniheldur metformin sem er lyf til meðferðar á
sykursýki. Það tilheyrir hópi
lyfja sem nefnast bígvaníð.
Insúlín er hormón sem framleitt er af briskirtli og gerir
líkamanum kleift að taka upp glúkósa (sykur)
úr blóðinu. Líkaminn notar glúkósa til að framleiða orku eða
geymir hann til að nota síðar.
Ef þú ert með sykursýki framleiðir briskirtillinn ekki nægilega
mikið insúlín eða líkaminn getur ekki
nýtt á réttan hátt það insúlín sem hann framleiðir. Þetta
leiðir til hás gildis glúkósa í blóðinu.
Metformin Teva B.V. hjálpar til við að lækka glúkósa í blóði
og gera gildi hans eins eðlilegt og unnt
er.
Ef þú ert fullorðinn einstaklingur yfir kjörþyngd getur taka
Metformin Teva B.V. í lengri tíma einnig
dregið úr h
                                
                                Perskaitykite visą dokumentą
                                
                            

Prekės savybės

                                1
SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS
1.
HEITI LYFS
Metformin Teva B.V. 500 mg filmuhúðaðar töflur
Metformin Teva B.V. 850 mg filmuhúðaðar töflur
Metformin Teva B.V. 1000 mg filmuhúðaðar töflur
2.
INNIHALDSLÝSING
Hver filmuhúðuð tafla inniheldur metforminhýdróklóríð 500 mg,
samsvarandi 390 mg af metformini
.
Hver filmuhúðuð tafla inniheldur metforminhýdróklóríð 850 mg,
samsvarandi 662,9 mg af
metformini.
Hver filmuhúðuð tafla inniheldur metforminhýdróklóríð 1000 mg,
samsvarandi 780 mg af metformini.
Sjá lista yfir öll hjálparefni í kafla 6.1.
3.
LYFJAFORM
Filmuhúðuð tafla.
500 mg:
Hvít til beinhvít filmuhúðuð sporöskjulaga tafla, merkt með
„93“ á annarri hliðinni og
„48“ á hinni hliðinni, stærðin er u.þ.b. 15 mm x 8 mm.
850 mg:
Hvít til beinhvít filmuhúðuð sporöskjulaga tafla, merkt með
„93“ á annarri hliðinni og
„49“ á hinni hliðinni, stærðin er u.þ.b. 18 mm x 9 mm..
1000 mg:
Hvít til beinhvít, sporöskjulaga tafla, merkt með „9“ vinstra
megin og „3“ hægra megin
við skoruna á annarri hliðinni og með „72“ vinstra megin og
„14“ hægra megin við
skoruna á hinni hliðinni, stærðin er u.þ.b. 19 mm x 9 mm.
Deiliskoran er eingöngu til þess að hægt sé að skipta töflunni
svo auðveldara sé að kyngja henni en
ekki til þess að skipta henni í jafna skammta.
4.
KLÍNÍSKAR UPPLÝSINGAR
4.1
ÁBENDINGAR
Meðferð við sykursýki af tegund 2, einkum hjá
yfirþyngdarsjúklingum, þegar stjórn á mataræði og
hreyfing ein sér skila sér ekki í nægilegri stjórn á
blóðsykri.
•
Hjá fullorðnum má nota metformin sem einlyfja meðferð eða með
öðrum sykursýkislyfjum til
inntöku eða insúlíni.
•
Hjá börnum frá 10 ára aldri og unglingum má nota metformin sem
einlyfja meðferð eða með
insúlíni.
Komið hefur í ljós fækkun fylgikvilla sykursýki hjá of þungum,
fullorðnum sjúklingum með sykursýki
af tegund 2 sem meðhöndlaðir eru með metformini sem fyrsta
valmöguleika eftir
                                
                                Perskaitykite visą dokumentą
                                
                            

Ieškokite perspėjimų, susijusių su šiuo produktu