Nicotinell Fruit Lyfjatyggigúmmí 4 mg

Country: Ísland

Tungumál: íslenska

Heimild: LYFJASTOFNUN (Icelandic Medicines Agency)

Kauptu það núna

Vara einkenni Vara einkenni (SPC)
21-06-2023

Virkt innihaldsefni:

Nicotinum resin-komplex

Fáanlegur frá:

Haleon Denmark ApS

ATC númer:

N07BA01

INN (Alþjóðlegt nafn):

Nicotinum

Skammtar:

4 mg

Lyfjaform:

Lyfjatyggigúmmí

Gerð lyfseðils:

(L) Ekki lyfseðilsskylt

Vörulýsing:

012461 Þynnupakkning ; 488730 Þynnupakkning ; 466588 Þynnupakkning

Leyfisstaða:

Markaðsleyfi útgefið

Leyfisdagur:

1996-10-01

Upplýsingar fylgiseðill

                                1
FYLGISEÐILL: UPPLÝSINGAR FYRIR NOTANDA LYFSINS
NICOTINELL FRUIT/LAKRIDS/MINT, LYFJATYGGIGÚMMÍ 2 MG OG 4 MG
nikótín
LESIÐ ALLAN FYLGISEÐILINN VANDLEGA ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ NOTA
LYFIÐ. Í HONUM ERU MIKILVÆGAR
UPPLÝSINGAR.
Alltaf skal nota lyfið nákvæmlega eins og lýst er í þessum
fylgiseðli eða eins og læknirinn eða
lyfjafræðingur hefur mælt fyrir um.
-
Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann
síðar.
-
Leitið til lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum eða
ráðgjöf.
-
Látið lækninn, lyfjafræðing eða hjúkrunarfræðinginn vita um
allar aukaverkanir. Þetta gildir
einnig um aukaverkanir sem ekki er minnst á í þessum fylgiseðli.
Sjá kafla 4.
-
Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki
eftir 12 mánaða notkun á Nicotinell
Fruit/Lakrids/Mint.
Í FYLGISEÐLINUM ERU EFTIRFARANDI KAFLAR
:
1.
Upplýsingar um Nicotinell Fruit/Lakrids/Mint og við hverju það er
notað
2.
Áður en byrjað er að nota Nicotinell Fruit/Lakrids/Mint
3.
Hvernig nota á Nicotinell Fruit/Lakrids/Mint
4.
Hugsanlegar aukaverkanir
5.
Hvernig geyma á Nicotinell Fruit/Lakrids/Mint
6.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
1.
UPPLÝSINGAR UM NICOTINELL FRUIT/LAKRIDS/MINT OG VIÐ HVERJU ÞAÐ ER
NOTAÐ
Nicotinell Fruit/Lakrids/Mint lyfjatyggigúmmí tilheyrir flokki lyfja
sem notaður er sem hjálpartæki
þegar reykingum er hætt.
Nicotinell Fruit/Lakrids/Mint inniheldur virka efnið nikótín.
Þegar þú tyggur Nicotinell
Fruit/Lakrids/Mint losnar nikótínið hægt og frásogast í gegnum
slímhúðina í munninum.
Nicotinell Fruit/Lakrids/Mint lyfjatyggigúmmí er notað til að
draga úr nikótínþörf og
fráhvarfseinkennum nikótíns hjá einstaklingum sem eru háðir
nikótíni. Þannig getur það:
•
auðveldað reykingafólki sem vill hætta að reykja að hætta og
•
auðveldað reykingafólki, sem ekki getur eða ekki vill hætta að
reykja, að draga úr reykingum.
Verið getur að læknirinn hafi ávísað Nicotinell
Fruit/Lakrid
                                
                                Lestu allt skjalið
                                
                            

Vara einkenni

                                1
SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS
1.
HEITI LYFS
Nicotinell Fruit 2 mg og 4 mg lyfjatyggigúmmí.
2.
INNIHALDSLÝSING
Hvert lyfjatyggigúmmí inniheldur 2 mg eða 4 mg nikótín sem
samsvara 10 mg eða 20 mg
nikótínpólacrillín (1:4).
Hjálparefni neð þekkta verkun
2 mg: sorbitól 208 mg og bútýlhýdroxýtólúen.
4 mg: sorbitól 192,1 mg og bútýlhýdroxýtólúen.
Sjá lista yfir öll hjálparefni í kafla 6.1.
3.
LYFJAFORM
Lyfjatyggigúmmí.
Tyggigúmmíin eru húðuð, beinhvít og rétthyrnd.
4.
KLÍNÍSKAR UPPLÝSINGAR
4.1
ÁBENDINGAR
Til meðferðar á tóbaksfíkn en lyfið dregur úr nikótínþörf
og fráhvarfseinkennum og það auðveldar þar
með reykingarfólki sem vill hætta að reykja, að hætta og
auðveldar þeim sem ekki geta hætt, eða eru
tregir til þess, að draga úr reykingum.
4.2
SKAMMTAR OG LYFJAGJÖF
_Fullorðnir: _
Hætta skal alfarið reykingum á meðan á meðferð með Nicotinell
Fruit lyfjatyggigúmmíi stendur.
Skammta skal ákvarða út frá því hversu háður nikótíni
einstaklingurinn er. Mælt er með
4 mg lyfjatyggigúmmíi fyrir einstaklinga með mikla nikótínþörf
og fyrir þá sem ekki hefur tekist að
hætta með notkun 2 mg lyfjatyggigúmmís. Í öðrum tilfellum skal
nota 2 mg lyfjatyggigúmmí.
Ákvarða skal meðferð út frá eftirfarandi töflu:
LÍTIL EÐA MIÐLUNGI MIKIL
ÁVANABINDING
MIÐLUNGI MIKIL EÐA MIKIL
ÁVANABINDING
MIKIL EÐA MJÖG MIKIL
ÁVANABINDING
Færri en 20
sígarettur/sólarhring
20-30 sígarettur/sólarhring
Fleiri en 30
sígarettur/sólarhring
Æskilegt er að nota lægri
styrkleikann
(2 mg lyfjatyggigúmmí)
Nota má lægri styrkleikann
(2 mg lyfjatyggigúmmí)
eða hærri styrkleikann
Æskilegt er að nota hærri
styrkleikann
(4 mg lyfjatyggigúmmí)
Nota á lágskammta
nikótínlyf
Nota á háskammta nikótínlyf
2
(4 mg lyfjatyggigúmmí)
eftir einkennum sjúklingsins og
vali
VERÐI VART VIÐ AUKAVERKANIR ÞEGAR HÆRRI STYRKLEIKINN ER NOTAÐUR,
SKAL ÍHUGA AÐ SKIPTA YFIR Í
LÆGRI STYRKLEIKANN. UPPHAFSSKAMMTUR SKAL ÁKVAR
                                
                                Lestu allt skjalið
                                
                            

Leitaðu viðvaranir sem tengjast þessari vöru