Sitagliptin Zentiva Filmuhúðuð tafla 50 mg

Ország: Izland

Nyelv: izlandi

Forrás: LYFJASTOFNUN (Icelandic Medicines Agency)

Vedd Meg Most

Betegtájékoztató Betegtájékoztató (PIL)
30-09-2022
Termékjellemzők Termékjellemzők (SPC)
27-09-2022

Aktív összetevők:

Sitagliptinum hýdróklóríð

Beszerezhető a:

Zentiva k.s.*

ATC-kód:

A10BH01

INN (nemzetközi neve):

Sitagliptinum

Adagolás:

50 mg

Gyógyszerészeti forma:

Filmuhúðuð tafla

Recept típusa:

(R) Lyfseðilsskylt

Termék összefoglaló:

177862 Þynnupakkning Ógegnsæjar PVC/PVDC-Ál þynnur V0982

Engedélyezési státusz:

Markaðsleyfi útgefið

Engedély dátuma:

2021-12-01

Betegtájékoztató

                                1
FYLGISEÐILL: UPPLÝSINGAR FYRIR SJÚKLING
SITAGLIPTIN ZENTIVA 25 MG FILMUHÚÐAÐAR TÖFLUR
SITAGLIPTIN ZENTIVA 50 MG FILMUHÚÐAÐAR TÖFLUR
SITAGLIPTIN ZENTIVA 100 MG FILMUHÚÐAÐAR TÖFLUR
sitagliptín
LESIÐ ALLAN FYLGISEÐILINN VANDLEGA ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ NOTA
LYFIÐ. Í HONUM ERU MIKILVÆGAR
UPPLÝSINGAR.
-
Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann
síðar.
-
Leitið til læknisins, lyfjafræðings eða hjúkrunarfræðingsins
ef þörf er á frekari upplýsingum.
-
Þessu lyfi hefur verið ávísað til persónulegra nota. Ekki má
gefa það öðrum. Það getur valdið
þeim skaða, jafnvel þótt um sömu sjúkdómseinkenni sé að
ræða.
-
Látið lækninn, lyfjafræðing eða hjúkrunarfræðinginn vita um
allar aukaverkanir. Þetta gildir
einnig um aukaverkanir sem ekki er minnst á í þessum fylgiseðli.
Sjá kafla 4.
Í FYLGISEÐLINUM ERU EFTIRFARANDI KAFLAR
:
1.
Upplýsingar um Sitagliptin Zentiva og við hverju það er notað
2.
Áður en byrjað er að nota Sitagliptin Zentiva
3.
Hvernig nota á Sitagliptin Zentiva
4.
Hugsanlegar aukaverkanir
5.
Hvernig geyma á Sitagliptin Zentiva
6.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
1.
UPPLÝSINGAR UM SITAGLIPTIN ZENTIVA OG VIÐ HVERJU ÞAÐ ER NOTAÐ
Sitagliptin Zentiva inniheldur virka efnið sitagliptín sem tilheyrir
flokki lyfja sem kallast DPP-4
hemlar (dipeptílpeptíðasa 4 hemlar) og lækka blóðsykursgildi
hjá fullorðnum sjúklingum með
sykursýki af tegund 2.
Þetta lyf hjálpar til við að auka insúlínmagn sem líkaminn
framleiðir eftir máltíð og dregur úr
sykrinum sem líkaminn framleiðir sjálfur.
Læknirinn hefur ávísað lyfinu til aðstoðar við lækkun
blóðsykurs sem er of hár því þú ert með
sykursýki af tegund 2. Lyfið má nota eitt sér eða samhliða
tilteknum blóðsykurslækkandi lyfjum
(insúlíni, metformíni, súlfonýlúrealyfi eða glítazónlyfi),
sem þú gætir nú þegar verið að taka við
sykursýki, ásamt sérstakri mataræðis- og
líkamsþjálfunaráætlun.
Hvað
                                
                                Olvassa el a teljes dokumentumot
                                
                            

Termékjellemzők

                                1
SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS
1.
HEITI LYFS
Sitagliptin Zentiva 25 mg filmuhúðaðar töflur
Sitagliptin Zentiva 50 mg filmuhúðaðar töflur
Sitagliptin Zentiva 100 mg filmuhúðaðar töflur
2.
INNIHALDSLÝSING
Sitagliptin Zentiva 25 mg filmuhúðaðar töflur: Hver filmuhúðuð
tafla inniheldur
sitagliptínhýdróklóríðeinhýdrat, sem jafngildir 25 mg af
sitagliptíni.
Sitagliptin Zentiva 50 mg filmuhúðaðar töflur: Hver filmuhúðuð
tafla inniheldur
sitagliptínhýdróklóríðeinhýdrat, sem jafngildir 50 mg af
sitagliptíni.
Sitagliptin Zentiva 100 mg filmuhúðaðar töflur: Hver filmuhúðuð
tafla inniheldur
sitagliptínhýdróklóríðeinhýdrat, sem jafngildir 100 mg af
sitagliptíni.
Á aðeins við um 25 mg töflur:
Hjálparefni með þekkta verkun
Sitagliptin Zentiva 25 mg filmuhúðaðar töflur: Hver filmuhúðuð
tafla inniheldur 1 mg af
laktósaeinhýdrati.
Sjá lista yfir öll hjálparefni í kafla 6.1
3.
LYFJAFORM
Filmuhúðuð tafla
Sitagliptin Zentiva 25 mg filmuhúðaðar töflur eru bleikar,
kringlóttar töflur, tvíkúptar, u.þ.b. 6 mm í
þvermál, merktar með „LC“ á annarri hliðinni en auðar á
hinni hliðinni.
Sitagliptin Zentiva 50 mg filmuhúðaðar töflur eru appelsínugular,
kringlóttar töflur, tvíkúptar, u.þ.b.
8 mm í þvermál, merktar með „C“ á annarri hliðinni en auðar
á hinni hliðinni.
Sitagliptin Zentiva 100 mg filmuhúðaðar töflur eru drapplitaðar,
kringlóttar töflur, tvíkúptar, u.þ.b.
10 mm í þvermál, merktar með „L“ á annarri hliðinni en
auðar á hinni hliðinni.
4.
KLÍNÍSKAR UPPLÝSINGAR
4.1
ÁBENDINGAR
Sitagliptin Zentiva er ætlað til að bæta stjórnun á blóðsykri
hjá fullorðnum sjúklingum með sykursýki
af tegund 2:
sem einlyfjameðferð:
•
hjá sjúklingum þegar ekki næst viðunandi stjórn á blóðsykri
með mataræði og líkamsþjálfun
eingöngu og hjá þeim þar sem metformín er ónothæft vegna
frábendinga eða óþols.
sem samsett tveggja lyfja meðferð til inntöku, samhliða:
•

                                
                                Olvassa el a teljes dokumentumot