Otrivin Menthol ukonserveret Nefúði, lausn 1 mg/ml

Maa: Islanti

Kieli: islanti

Lähde: LYFJASTOFNUN (Icelandic Medicines Agency)

Osta se nyt

Pakkausseloste Pakkausseloste (PIL)
07-06-2023
Valmisteyhteenveto Valmisteyhteenveto (SPC)
07-06-2023

Aktiivinen ainesosa:

Xylometazolinum hýdróklóríð

Saatavilla:

Haleon Denmark ApS

ATC-koodi:

R01AA07

INN (Kansainvälinen yleisnimi):

Xylometazolinum

Annos:

1 mg/ml

Lääkemuoto:

Nefúði, lausn

Prescription tyyppi:

(L) Ekki lyfseðilsskylt

Tuoteyhteenveto:

423414 Glas

Valtuutuksen tilan:

Markaðsleyfi útgefið

Valtuutus päivämäärä:

2000-09-11

Pakkausseloste

                                1
FYLGISEÐILL: UPPLÝSINGAR FYRIR NOTANDA LYFSINS
OTRIVIN MENTHOL UKONSERVERET 1 MG/ML NEFÚÐI, LAUSN
xýlómetazólínhýdróklóríð
LESIÐ ALLAN FYLGISEÐILINN VANDLEGA ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ NOTA
LYFIÐ. Í HONUM ERU MIKILVÆGAR
UPPLÝSINGAR.
Alltaf skal nota lyfið nákvæmlega eins og lýst er í þessum
fylgiseðli eða eins og lyfjafræðingur eða
hjúkrunarfræðingur hefur mælt fyrir um.
-
Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann
síðar.
-
Leitið til lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum eða
ráðgjöf.
-
Látið lækninn eða lyfjafræðing vita um allar aukaverkanir.
Þetta gildir einnig um aukaverkanir
sem ekki er minnst á í þessum fylgiseðli. Sjá kafla 4.
-
Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki.
Í FYLGISEÐLINUM
:
1.
Upplýsingar um Otrivin Menthol og við hverju það er notað
2.
Áður en byrjað er að nota Otrivin Menthol
3.
Hvernig nota á Otrivin Menthol
4.
Hugsanlegar aukaverkanir
5.
Hvernig geyma á Otrivin Menthol
6.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
1.
UPPLÝSINGAR UM OTRIVIN MENTHOL OG VIÐ HVERJU ÞAÐ ER NOTAÐ
Otrivin Menthol er ætlað fullorðnum og börnum eldri en 12 ára.
Otrivin Menthol er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára.
Otrivin Menthol er notað við nefstíflu vegna kvefs og bólgu í
ennis- og kinnholum.
Otrivin Menthol verkar þannig að það dregur saman háræðarnar í
bólginni slímhúð nefsins. Við það
minnkar stíflan í nefinu og loftstreymið um nefið batnar. Verkun
hefst eftir fáeinar mínútur og varir í
allt að 12 klukkustundir.
Otrivin Menthol þolist almennt vel, einnig hjá sjúklingum með
viðkvæma slímhúð.
Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum
sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og
leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.
2.
ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ NOTA OTRIVIN MENTHOL_ _
EKKI MÁ NOTA OTRIVIN MENTHOL
-
ef þú ert með ofnæmi fyrir xýlómetazó
                                
                                Lue koko asiakirja
                                
                            

Valmisteyhteenveto

                                1
SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS
1.
HEITI LYFS
Otrivin Menthol ukonserveret, 1 mg/ml nefúði, lausn.
2.
INNIHALDSLÝSING
Xýlómetazólínhýdróklóríð 1 mg/ml (1 úði inniheldur 0,14 mg
af xýlómetazólínhýdróklóríði).
Sjá lista yfir öll hjálparefni í kafla 6.1.
3.
LYFJAFORM
Nefúði, lausn.
Ópallýsandi, hvít lausn með ilm af menthol og eukalyptus (cineol).
4.
KLÍNÍSKAR UPPLÝSINGAR
4.1
ÁBENDINGAR
Bólgur og aukin slímmyndun í nefi, kinnholum og nefkoki.
Otrivin Menthol 1 mg/ml er ætlað fullorðnum og börnum eldri en 12
ára.
4.2
SKAMMTAR OG LYFJAGJÖF
Ekki er mælt með notkun Otrivin Menthol hjá börnum yngri en 12
ára.
OTRIVIN NEFÚÐI MEÐ AFMÆLDA SKAMMTA
Ekki skal nota Otrivin lengur en 10 daga í einu.
Ekki skal nota stærri skammt er ráðlegt er, sérstaklega hjá
börnum og öldruðum.
Fullorðnir og börn eldri en 12 ára:
Ein úðun í hvora nös allt að að 3 sinnum á sólarhring eftir
þörfum. Ekki úða oftar en að hámarki 3 úða
í hvora nös á sólarhring.
Ráðlagt er að nota síðasta skammtinn stuttu fyrir svefn.
Lyfjagjöf:
Fyrir fyrstu notkun á að ýta 4 sinnum á úðarann til að
undirbúa dæluna. Nú er dælan tilbúin til
notkunar. Ef hún gefur ekki frá sér lausn þegar þrýst er á hana
þarf að undirbúa dæluna að nýju eins og
lýst er hér að ofan.
1.
Snýttu þér. Fjarlægðu glæru plasthettuna.
2.
Skorðaðu úðaflöskuna milli fingranna. Úðað er með því að
þrýsta kraganum niður að flöskunni.
3.
Hallaðu höfðinu örlítið fram.
4.
Stúturinn á úðaflöskunni er settur upp í nösina. Úðað er
einu sinni, um leið og andað er að sér
inn um nefið.
Farðu eins að í hina nösina.
2
4.3
FRÁBENDINGAR
Ofnæmi fyrir xýlómetazólíni eða einhverju hjálparefnanna sem
talin eru upp í kafla 6.1.
Eins og við á um önnur æðaþrengjandi lyf má ekki nota Otrivin
Menthol eftir heiladingulsnám
(transsphenoidal hypofysectomy) eða skurðaðgerðir þar sem opnað
hefur verið inn á heilabastið (dura
mater).
Ekk
                                
                                Lue koko asiakirja