Toilax Endaþarmsdreifa 2 mg/ml

País: Islandia

Idioma: islandés

Fuente: LYFJASTOFNUN (Icelandic Medicines Agency)

Cómpralo ahora

Ficha técnica Ficha técnica (SPC)
06-07-2020

Ingredientes activos:

Bisacodylum INN

Disponible desde:

Orion Corporation

Código ATC:

A06AG02

Designación común internacional (DCI):

Bisacodylum

Dosis:

2 mg/ml

formulario farmacéutico:

Endaþarmsdreifa

tipo de receta:

(L R) Ekki lyfseðilsskylt/ lyfseðilsskylt

Resumen del producto:

103937 Túpa

Estado de Autorización:

Markaðsleyfi útgefið

Fecha de autorización:

1975-09-18

Información para el usuario

                                1
FYLGISEÐILL: UPPLÝSINGAR FYRIR NOTANDA LYFSINS
TOILAX
® 5 MG SÝRUÞOLNAR TÖFLUR
TOILAX
® 2 MG/ML ENDAÞARMSDREIFA
bisacodyl
LESIÐ ALLAN FYLGISEÐILINN VANDLEGA ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ NOTA
LYFIÐ. Í HONUM ERU MIKILVÆGAR
UPPLÝSINGAR.
Alltaf skal nota lyfið nákvæmlega eins og lýst er í þessum
fylgiseðli eða eins og læknirinn eða
lyfjafræðingur hefur mælt fyrir um.
-
Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann
síðar.
-
Leitið til lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum eða
ráðgjöf.
-
Látið lækninn eða lyfjafræðing vita um allar aukaverkanir.
Þetta gildir einnig um aukaverkanir
sem ekki er minnst á í þessum fylgiseðli. Sjá kafla 4.
-
Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki.
Í FYLGISEÐLINUM ERU EFTIRFARANDI KAFLAR:
1.
Upplýsingar um Toilax og við hverju það er notað
2.
Áður en byrjað er að nota Toilax
3.
Hvernig nota á Toilax
4.
Hugsanlegar aukaverkanir
5.
Hvernig geyma á Toilax
6.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
1.
UPPLÝSINGAR UM TOILAX OG VIÐ HVERJU ÞAÐ ER NOTAÐ
Toilax er hægðalyf. Það virkar með því að auka
þarmahreyfingar og safna vatni í ristlinum.
Toilax er notað við hægðatregðu.
Toilax er notað til þarmahreinsunar fyrir aðgerðir eða
rannsóknir á þörmum.
Ef læknirinn hefur sagt þér að nota Toilax við einhverju öðru,
skaltu ávalt fylgja fyrirmælum
læknisins.
2.
ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ NOTA TOILAX
Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum
sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og
leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.
EKKI MÁ NOTA TOILAX:
-
ef um er að ræða ofnæmi fyrir bisacodyli eða einhverju öðru
innihaldsefni lyfsins (talin upp í
kafla 6)
-
ef flutningur fæðu um meltingarveginn stöðvast eða skerðist
verulega (t.d. garnaflækja eða
þrengsli í þörmum)
-
ef þú átt almennt við vökvaskort að stríða þ.e. hefur neytt
lítils vö
                                
                                Leer el documento completo
                                
                            

Ficha técnica

                                1
SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS
1.
HEITI LYFS
Toilax 2 mg/ml endaþarmsdreifa, stakskammtaílát.
2.
INNIHALDSLÝSING
1 ml af endaþarmsdreifu inniheldur 2 mg bisacodyl .
Sjá lista yfir öll hjálparefni í kafla 6.1.
3.
LYFJAFORM
Endaþarmsdreifa, stakskammtaílát 5 ml.
4.
KLÍNÍSKAR UPPLÝSINGAR
4.1
ÁBENDINGAR
Til þarmahreinsunar fyrir skurðaðgerð, endaþarmsspeglun eða
röntgenmyndatöku.
Til skammtímanotkunar við hægðatregðu.
4.2
SKAMMTAR OG LYFJAGJÖF
Einungis skal meðhöndla börn 10 ára og yngri sem eru með
langvarandi hægðatregðu samkvæmt
ráðleggingum læknis. Ekki má nota bisacodyl handa börnum yngri en
2 ára.
Skammtar
Til skammtímanotkunar við hægðatregðu
Fullorðnir og börn eldri en 10 ára: Einn skammtur af
endaþarmsdreifu (10 mg) á sólarhring skömmu
áður en áhrifanna er óskað.
_Börn_
Börn 2-10 ára: ½ skammtur af endaþarmsdreifu (5 mg) skömmu áður
en áhrifanna er óskað. Hjá
börnum á aldrinum 2-3 ára má ekki setja meira en hálfan sprotann
á túpunni inn í endaþarminn.
Til þarmahreinsunar fyrir skurðaðgerð, endaþarmsspeglun eða
röntgenmyndatöku
Notist einungis í samræmi við fyrirmæli læknis.
Fullorðnir og börn eldri en 10 ára: Daginn fyrir rannsókn skal
taka 2 sýruþolnar töflur (10 mg
bisacodyl) um morguninn og 2 sýruþolnar töflur (10 mg bisacodyl) um
kvöldið fyrir svefn. Að morgni
rannsóknardagsins skal gefa innihald úr 1 túpu af endaþarmsdreifu
(10 mg bisacodyl) með innhellingu
í endaþarm.
Börn 4-10 ára: Daginn fyrir rannsókn skal taka 1 sýruþolna töflu
(5 mg) fyrir svefn. Að morgni
rannsóknardagsins skal gefa innihald ½ túpu af endaþarmsdreifu (5
mg) með innhellingu í endaþarm.
Lyfjagjöf
Gefa á endaþarmsdreifuna með innhellingu í endaþarm sem hér
segir: Snúið endann af túpusprotanum
og færið túpusprotann að fullu inn í endaþarminn. Hjá börnum
(2-3 ára) skal þó einungis færa
2
túpusprotann inn til hálfs. Innihald túpunnar er kreist úr henni
og túpan síðan dregin út,
                                
                                Leer el documento completo
                                
                            

Buscar alertas relacionadas con este producto