Imigran Stungulyf, lausn 12 mg/ml

Country: Iceland

Language: Icelandic

Source: LYFJASTOFNUN (Icelandic Medicines Agency)

Buy It Now

Active ingredient:

Sumatriptanum súkkínat

Available from:

GlaxoSmithKline Pharma A/S

ATC code:

N02CC01

INN (International Name):

Sumatriptanum

Dosage:

12 mg/ml

Pharmaceutical form:

Stungulyf, lausn

Prescription type:

(R) Lyfseðilsskylt

Product summary:

093260 Sprauta + penni

Authorization status:

Markaðsleyfi útgefið

Authorization date:

1992-10-01

Patient Information leaflet

                                1
FYLGISEÐILL: UPPLÝSINGAR FYRIR NOTANDA LYFSINS
IMIGRAN 12 MG/ML STUNGULYF, LAUSN
súmatriptan
LESIÐ ALLAN FYLGISEÐILINN VANDLEGA ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ NOTA
LYFIÐ. Í HONUM ERU MIKILVÆGAR
UPPLÝSINGAR.
-
Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann
síðar.
-
Leitið til læknisins eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari
upplýsingum.
-
Þessu lyfi hefur verið ávísað til persónulegra nota. Ekki má
gefa það öðrum. Það getur valdið
þeim skaða, jafnvel þótt um sömu sjúkdómseinkenni sé að
ræða.
-
Látið lækninn eða lyfjafræðing vita um allar aukaverkanir.
Þetta gildir einnig um aukaverkanir
sem ekki er minnst á í þessum fylgiseðli. Sjá kafla 4.
Í FYLGISEÐLINUM ERU EFTIRFARANDI KAFLAR
:
1.
Upplýsingar um Imigran og við hverju það er notað
2.
Áður en byrjað er að nota Imigran
3.
Hvernig nota á Imigran
4.
Hugsanlegar aukaverkanir
5.
Hvernig geyma á Imigran
6.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
1.
UPPLÝSINGAR UM IMIGRAN OG VIÐ HVERJU ÞAÐ ER NOTAÐ
Imigran stungulyf er ætlað til meðferðar við bráðum
mígreniköstum. Í mígrenikasti víkka sumar æðar í
höfðinu. Imigran dregur þessar æðar saman. Það er sennilega
vegna þessa sem einkenni mígrenis
ganga til baka. Imigran stungulyf er einnig notað við
Cluster-höfuðverk (óvenjulega miklum
höfuðverk sem kemur fram öðrum megin í enninu).
2.
ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ NOTA IMIGRAN
Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum
sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og
leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.
EKKI MÁ NOTA IMIGRAN
-
ef um er að ræða ofnæmi fyrir súmatriptani eða einhverju öðru
innihaldsefni lyfsins (talin upp
í kafla 6).
-
ef þú ert með of háan blóðþrýsting eða ákveðna hjarta- eða
æðasjúkdóma.
-
ef þú ert með alvarlega skerta lifrarstarfsemi.
-
samtímis ákveðnum öðrum mígrenilyfjum, þ.á m. ergotamíni,
afleiðum ergotamí
                                
                                Read the complete document
                                
                            

Summary of Product characteristics

                                1
SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS
1.
HEITI LYFS
Imigran 12 mg/ml stungulyf, lausn.
2.
INNIHALDSLÝSING
1 ml af stungulyfi inniheldur súmatriptansúkkínat sem samsvarar 12
mg af súmatriptani (6 mg í
hverjum 0,5 ml).
Hjálparefni:
Sjá lista yfir öll hjálparefni í kafla 6.1.
3.
LYFJAFORM
Stungulyf, lausn.
4.
KLÍNÍSKAR UPPLÝSINGAR
4.1
ÁBENDINGAR
Bráð mígreniköst, með eða án fyrirboðaeinkenna.
Cluster-höfuðverkur.
4.2
SKAMMTAR OG LYFJAGJÖF
Skammtar
Eingöngu til inndælingar undir húð. Sjúklinga skal biðja um að
lesa vandlega
notkunarleiðbeiningarnar, sérstaklega varðandi meðhöndlun á
notaðri sprautu. Nota skal eina áfyllta
sprautu (6 mg) til inndælingar undir húð.
Til meðferðar við bráðum mígreniköstum og Cluster-höfuðverk.
Má ekki nota við fyrirbyggjandi
meðferð. Ekki skal nota stærri skammta en ráðlagðir eru.
_CLUSTER-HÖFUÐVERKUR_:
_Fullorðnir (18-65 ára): STUNGULYF_
:
_Skömmtun, sjá töflu._
_MÍGRENI: Fullorðnir (18-65 ára): Skömmtun, sjá töflu._
VENJULEGUR SKAMMTUR
HÁMARKSSKAMMTUR Á SÓLARHRING
TÍMI Á MILLI SKAMMTA
STUNGULYF
:
_Mígreni:_
_Cluster- _
_höfuðverkur:_
1 sprauta (6 mg) undir húð
1 sprauta (6 mg) undir húð
2 inndælingar (12 mg)
2 inndælingar (12 mg)
Minnst 1 klst.
Minnst 1 klst.
Nota skal stungulyf þegar þörf er á hraðri verkun eða þegar um
er að ræða ógleði, uppköst og
ljósfælni. Ráðlagt er að hefja meðferð við fyrstu merki um
mígrenihöfuðverk. Virkni súmatriptans er
ekki háð því hve lengi kastið hefur varað þegar meðferð er
hafin.
Ef einkenni batna eftir fyrsta skammtinn, en koma fram aftur má gefa
nýjan skammt. Sjá í töflunni hve
langur tími skal líða á milli skammtanna.
2
Ef fyrsti skammtur verkar ekki skal ekki nota annan skammt við sama
mígrenikastinu. Í slíkum
tilvikum má meðhöndla kastið með parasetamóli,
acetýlsalisýlsýru eða bólgueyðandi lyfjum sem ekki
eru sterar. Það má hins vegar reyna að nota Imigran við næsta
kasti. Imigran hefur ekki áhrif ef 
                                
                                Read the complete document