Íbúfen Filmuhúðuð tafla 200 mg

Land: Island

Sprog: islandsk

Kilde: LYFJASTOFNUN (Icelandic Medicines Agency)

Køb det nu

Indlægsseddel Indlægsseddel (PIL)
04-03-2024
Produktets egenskaber Produktets egenskaber (SPC)
04-03-2024

Aktiv bestanddel:

Ibuprofenum INN

Tilgængelig fra:

Teva B.V.*

ATC-kode:

M01AE01

INN (International Name):

Ibuprofenum

Dosering:

200 mg

Lægemiddelform:

Filmuhúðuð tafla

Recept type:

(L R) Ekki lyfseðilsskylt/ lyfseðilsskylt

Produkt oversigt:

116551 Þynnupakkning Ógegnsæjar PVC/ál þynnupakkningar eða glærar PVC/ál þynnupakkningar

Autorisation status:

Markaðsleyfi útgefið

Autorisation dato:

2009-06-16

Indlægsseddel

                                FYLGISEÐILL: UPPLÝSINGAR FYRIR NOTANDA LYFSINS
ÍBÚFEN 200 MG FILMUHÚÐAÐAR TÖFLUR
íbúprófen
LESIÐ ALLAN FYLGISEÐILINN VANDLEGA ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ NOTA
LYFIÐ. Í HONUM ERU MIKILVÆGAR
UPPLÝSINGAR.
Alltaf skal nota lyfið nákvæmlega eins og lýst er í þessum
fylgiseðli eða eins og læknirinn eða
lyfjafræðingur hefur mælt fyrir um.
-
Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann
síðar.
-
Leitið til lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum eða
ráðgjöf.
-
Látið lækninn eða lyfjafræðing vita um allar aukaverkanir.
Þetta gildir einnig um aukaverkanir
sem ekki er minnst á í þessum fylgiseðli. Sjá kafla 4.
-
Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki
-
innan 3 daga hjá börnum og unglingum
-
innan 7 daga hjá fullorðnum.
Í FYLGISEÐLINUM ERU EFTIRFARANDI KAFLAR
:
1.
Upplýsingar um Íbúfen og við hverju það er notað
2.
Áður en byrjað er að nota Íbúfen
3.
Hvernig nota á Íbúfen
4.
Hugsanlegar aukaverkanir
5.
Hvernig geyma á Íbúfen
6.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
1.
UPPLÝSINGAR UM ÍBÚFEN OG VIÐ HVERJU ÞAÐ ER NOTAÐ
Íbúfen tilheyrir flokki lyfja sem kölluð eru NSAID-lyf
(bólgueyðandi lyf sem ekki eru sterar) og draga
úr verkjum, bólgum og hita.
Íbúfen 200 mg filmuhúðaðar töflur eru notaðar við vægum til
meðal miklum verkjum eins og
höfuðverk, einnig mígreni höfuðverk, tannpínu, tíðaverkjum og
hita.
Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum
sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og
leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.
2.
ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ NOTA ÍBÚFEN
_ _
EKKI MÁ NOTA ÍBÚFEN
-
ef um er að ræða ofnæmi fyrir íbúprófeni eða einhverju öðru
innihaldsefni lyfsins (talin upp í
kafla 6).
-
ef þú hefur fengið ofnæmisviðbrögð eins og astma, nefrennsli,
útbrot með kláða eða ef varir,
andlit, tunga eða háls hafa bólgnað upp eftir að þú 
                                
                                Læs hele dokumentet
                                
                            

Produktets egenskaber

                                1
SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS
1.
HEITI LYFS
Íbúfen 200 mg filmuhúðaðar töflur.
2.
INNIHALDSLÝSING
Hver filmuhúðuð tafla inniheldur íbúprófen 200 mg.
Sjá lista yfir öll hjálparefni í kafla 6.1.
3.
LYFJAFORM
Filmuhúðuð tafla.
Hvítar, sporöskjulaga, kúptar filmuhúðaðar töflur með
deiliskoru á annarri hliðinni.
Töflunni má skipta í jafna skammta.
4.
KLÍNÍSKAR UPPLÝSINGAR
4.1
ÁBENDINGAR
Vægir eða miðlungsmiklir verkir svo sem höfuðverkur, mígreni
meðtalið, tannverkur.
Tíðaverkir (primary dysmenorrhoea).
Hiti.
Gigtarsjúkdómar s.s. liðbólgusjúkdómar (t.d. iktsýki þ.m.t.
barnaiktsýki), hrörnun í liðum (t.d.
slitgigt), vefjagigt, aðrir liða- og vöðvasjúkdómar og meiðsli
á mjúkvefjum.
4.2
SKAMMTAR OG LYFJAGJÖF
Leitast skal við að nota minnsta virka skammt í eins stuttan tíma
og nauðsynlegt er til að lina einkenni
(sjá kafla 4.4).
Ef barn eða unglingur þarf að nota lyfið í meira en 3 daga, eða
ef einkennin versna, skal leita ráða hjá
lækni.
Skömmtun á íbúprófeni fer eftir aldri sjúklings og þyngd.
Stærsti staki skammtur af íbúprófeni fyrir
fullorðna á ekki að vera meiri en 800 mg.
VÆGIR TIL MIÐLUNGSMIKLIR VERKIR OG HITI
_Fullorðnir og börn eldri en 12 ára (≥ 40 kg): _
200-400 mg gefin sem stakur skammtur eða 3-4 sinnum á dag með 4 til
6 klukkustunda millibili.
Við mígrenihöfuðverk eru 400 mg gefin sem stakur skammtur eða ef
nauðsynlegt er 400 mg á 4 til
6 klst. fresti.
Hámarksskammtur á dag á ekki að fara yfir 1200 mg.
_Börn 6-12 ára (> 20 kg): _
Börn 6-9 ára (20-29 kg): 200 mg 1-3 sinnum á dag á 4 til 6 klst.
fresti eftir þörfum.
Hámarksskammtur á dag á ekki að fara yfir 600 mg.
2
Börn 10-12 ára (30-40 kg): 200 mg 1-4 sinnum á dag á 4 til 6 klst.
fresti eftir þörfum.
Hámarksskammtur á dag á ekki að fara yfir 800 mg.
TÍÐAVERKIR
_Fullorðnir og unglingar eldri en 12 ára: _
200-400 mg 1-3 sinnum á dag á 4-6 klst. fresti eftir þörfum.
Hámarksskammtur á dag á ekki að fara yf
                                
                                Læs hele dokumentet
                                
                            

Søg underretninger relateret til dette produkt