Losartankalium/hydrochlorthiazid Krka Filmuhúðuð tafla 50 mg/12,5 mg

País: Islàndia

Idioma: islandès

Font: LYFJASTOFNUN (Icelandic Medicines Agency)

Compra'l ara

Fitxa tècnica Fitxa tècnica (SPC)
14-11-2023

ingredients actius:

Losartanum kalíum; Hydrochlorothiazide

Disponible des:

Krka Sverige AB

Codi ATC:

C09DA01

Designació comuna internacional (DCI):

Losartanum með þvagræsilyfjum

Dosis:

50 mg/12,5 mg

formulario farmacéutico:

Filmuhúðuð tafla

tipo de receta:

(R) Lyfseðilsskylt

Resumen del producto:

479122 Þynnupakkning Gegnsæ þynna úr áli/PVC/PVDC V0088

Estat d'Autorització:

Markaðsleyfi útgefið

Data d'autorització:

2023-03-29

Informació per a l'usuari

                                1
FYLGISEÐILL: UPPLÝSINGAR FYRIR NOTANDA LYFSINS
LOSARTANKALIUM/HYDROCHLORTHIAZID KRKA 50 MG/12,5 MG FILMUHÚÐAÐAR
TÖFLUR
lósartankalíum/hýdróklórtíazíð
LESIÐ ALLAN FYLGISEÐILINN VANDLEGA ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ NOTA
LYFIÐ. Í HONUM ERU MIKILVÆGAR
UPPLÝSINGAR.
-
Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann
síðar.
-
Leitið til læknisins eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari
upplýsingum.
-
Þessu lyfi hefur verið ávísað til persónulegra nota. Ekki má
gefa það öðrum. Það getur valdið
þeim skaða, jafnvel þótt um sömu sjúkdómseinkenni sé að
ræða.
-
Látið lækninn eða lyfjafræðing vita um allar aukaverkanir.
Þetta gildir einnig um aukaverkanir
sem ekki er minnst á í þessum fylgiseðli. Sjá kafla 4.
Í FYLGISEÐLINUM ERU EFTIRFARANDI KAFLAR
:
1.
Upplýsingar um Losartankalium/hydrochlorthiazid Krka og við hverju
það er notað
2.
Áður en byrjað er að nota Losartankalium/hydrochlorthiazid Krka
3.
Hvernig nota á Losartankalium/hydrochlorthiazid Krka
4.
Hugsanlegar aukaverkanir
5.
Hvernig geyma á Losartankalium/hydrochlorthiazid Krka
6.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
1.
UPPLÝSINGAR UM LOSARTANKALIUM/HYDROCHLORTHIAZID KRKA OG VIÐ HVERJU
ÞAÐ ER NOTAÐ
Losartankalium/hydrochlorthiazid Krka er samsett lyf af angíótensín
II viðtakablokka (lósartan) og
þvagræsilyfi (hýdróklórtíazíði). Angíótensín II er efni sem
er framleitt í líkamanum og binst við
viðtaka í æðum, sem veldur því að þær þrengjast. Þetta
veldur því að blóðþrýstingur hækkar. Lósartan
kemur í veg fyrir að angíótensín II bindist við þessa viðtaka,
sem veldur því að það slaknar á æðunum
sem gerir það að verkum að blóðþrýstingur lækkar.
Hýdróklórtíazíð vinnur að því að nýrun útskilja
meira af vökva og salti. Þetta hjálpar einnig til við að lækka
blóðþrýsting.
Losartankalium/hydrochlorthiazid Krka er notað til meðferðar við
háum blóðþrýstingi (háþrýstingi).
2.
ÁÐUR EN BYRJA
                                
                                Llegiu el document complet
                                
                            

Fitxa tècnica

                                1
SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS
1.
HEITI LYFS
Losartankalium/hydrochlorthiazid Krka 50 mg/12,5 mg filmuhúðaðar
töflur
2.
INNIHALDSLÝSING
Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 50 mg af lósartankalíum, sem
jafngildir 45,76 mg af lósartani, og
12,5 mg af hýdróklórtíazíði.
Hjálparefni með þekkta verkun: 59,98 mg af laktósa í hverri
töflu.
Sjá lista yfir öll hjálparefni í kafla 6.1.
3.
LYFJAFORM
Filmuhúðuð tafla.
Töflurnar eru gular, sporöskjulaga, vægt tvíkúptar,
filmuhúðaðar töflur með deiliskoru á annarri hlið,
töflustærð 6 mm x 12 mm (sporöskjulaga), þykkt 3,8-4,7 mm.
Deiliskoran er eingöngu til þess að hægt
sé að skipta töflunni svo auðveldara sé að kyngja henni en ekki
til þess að skipta henni í jafna
skammta.
4.
KLÍNÍSKAR UPPLÝSINGAR
4.1
ÁBENDINGAR
Losartankalium/hydrochlorthiazid Krka er ætlað til meðferðar við
háþrýstingi (essential hypertension)
hjá sjúklingum þegar hvorki hefur náðst nægileg stjórn á
blóðþrýstingi með lósartani eða
hýdróklórtíazíði einu sér.
4.2
SKAMMTAR OG LYFJAGJÖF
Háþrýstingur
Lósartan og hýdróklórtíazíð er ekki ætlað til notkunar sem
upphafsmeðferð, heldur hjá sjúklingum þar
sem ekki hefur náðst nægileg stjórn á blóðþrýstingi með
lósartankalíum eða hýdróklórtíazíði einu sér.
Mælt er með að fundinn sé hæfilegur skammtur (dose titration)
með hvoru efni fyrir sig (lósartani og
hýdróklórtíazíði).
Í þeim sjúkdómstilvikum þar sem það á við má íhuga bein
skipti úr meðferð með einu lyfi yfir í fasta
samsetningu hjá sjúklingum með blóðþrýsting sem ekki hefur
náðst nægileg stjórn á.
Venjulegur viðhaldsskammtur af Losartankalium/hydrochlorthiazid Krka
er ein tafla af
Losartankalium/hydrochlorthiazid Krka 50 mg/12,5 mg (lósartan 50
mg/hýdróklórtíazíð 12,5 mg) einu
sinni á dag. Hjá sjúklingum sem svara ekki meðferð með
Losartankalium/hydrochlorthiazid Krka
50 mg/12,5 mg á fullnægjandi hátt má auka skammtinn í eina t
                                
                                Llegiu el document complet