Rabeprazol Actavis Magasýruþolin tafla 20 mg

Страна: Исландия

Език: исландски

Източник: LYFJASTOFNUN (Icelandic Medicines Agency)

Купи го сега

Активна съставка:

Rabeprazolum natríum

Предлага се от:

Actavis Group PTC ehf.

АТС код:

A02BC04

INN (Международно Name):

Rabeprazolum

дозиране:

20 mg

Лекарствена форма:

Magasýruþolin tafla

Вид предписание :

(R) Lyfseðilsskylt

Каталог на резюме:

546844 Töfluílát V0010; 457726 Þynnupakkning V0003; 160279 Þynnupakkning V0010

Статус Оторизация:

Markaðsleyfi útgefið

Дата Оторизация:

2010-09-08

Листовка

                                1
FYLGISEÐILL: UPPLÝSINGAR FYRIR NOTANDA LYFSINS
RABEPRAZOL ACTAVIS 10 MG SÝRUÞOLNAR TÖFLUR
RABEPRAZOL ACTAVIS 20 MG SÝRUÞOLNAR TÖFLUR
rabeprazólnatríum
LESIÐ ALLAN FYLGISEÐILINN VANDLEGA ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ NOTA
LYFIÐ. Í HONUM ERU MIKILVÆGAR
UPPLÝSINGAR.
-
Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann
síðar.
-
Leitið til læknisins, lyfjafræðings eða hjúkrunarfræðingsins
ef þörf er á frekari upplýsingum.
-
Þessu lyfi hefur verið ávísað til persónulegra nota. Ekki má
gefa það öðrum. Það getur valdið
þeim skaða, jafnvel þótt um sömu sjúkdómseinkenni sé að
ræða.
-
Látið lækninn, lyfjafræðing eða hjúkrunarfræðinginn vita um
allar aukaverkanir. Þetta gildir
einnig um aukaverkanir sem ekki er minnst á í þessum fylgiseðli.
Sjá kafla 4.
Í FYLGISEÐLINUM ERU EFTIRFARANDI KAFLAR
:
1.
Upplýsingar um Rabeprazol Actavis og við hverju það er notað
2.
Áður en byrjað er að nota Rabeprazol Actavis
3.
Hvernig nota á Rabeprazol Actavis
4.
Hugsanlegar aukaverkanir
5.
Hvernig geyma á Rabeprazol Actavis
6.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
1.
UPPLÝSINGAR UM RABEPRAZOL ACTAVIS OG VIÐ HVERJU ÞAÐ ER NOTAÐ
Þetta lyf inniheldur virka efnið rabeprazólnatríum. Lyfið
tilheyrir flokki lyfja sem nefnast
prótónpumpuhemlar. Það verkar með því að minnka magn sýru sem
myndast í maganum.
Rabeprazol Actavis sýruþolnar töflur eru notaðar við eftirtöldum
sjúkdómum:
-
Vélindabakflæði, sem getur innifalið brjóstsviða.
Vélindabakflæði verður þegar sýra og matur
sleppur úr maga í vélinda.
-
Sár í maga eða efri hluta þarma. Þú færð einnig sýklalyf ef
sárin eru sýkt af bakteríu sem nefnist
_Helicobacter pylori_
(
_H. Pylori_
). Samhliðanotkun Rabeprazol Actavis og sýklalyfja upprætir
sýkinguna og græðir sárin. Það stöðvar einnig endurkomu
sýkingarinnar og sára.
-
Zollinger-Ellison heilkenni þegar of mikil sýra myndast í maga.
2.
ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ NOTA RABEPRAZOL ACTAVIS
Verið g
                                
                                Прочетете целия документ
                                
                            

Данни за продукта

                                1
SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS
1.
HEITI LYFS
Rabeprazol Actavis 10 mg sýruþolnar töflur.
Rabeprazol Actavis 20 mg sýruþolnar töflur.
2.
INNIHALDSLÝSING
Rabeprazol Actavis 10 mg sýruþolin tafla inniheldur 10 mg
rabeprazólnatríum sem jafngildir 9,42 mg
af rabeprazóli.
Rabeprazol Actavis 20 mg sýruþolin tafla inniheldur 20 mg
rabeprazólnatríum sem jafngildir
18,85 mg af rabeprazóli.
Sjá lista yfir öll hjálparefni í kafla 6.1.
3.
LYFJAFORM
Sýruþolin tafla.
10 mg: Bleik, húðuð, sporöskjulaga, tvíkúpt tafla.
20 mg: Gul, húðuð, sporöskjulaga, tvíkúpt tafla.
4.
KLÍNÍSKAR UPPLÝSINGAR
4.1
ÁBENDINGAR
Rabeprazol Actavis töflur eru ætlaðar til meðhöndlunar á:
•
Virku skeifugarnarsári.
•
Virku góðkynja magasári.
•
Einkennum bakflæðissjúkdóms frá maga í vélinda með fleiðri
eða sárum (GORD).
•
Bakflæðissjúkdómi frá maga í vélinda, langtímameðferð (GORD
viðhald).
•
Einkennum á meðal alvarlegum til mjög alvarlegs
bakflæðissjúkdóms frá maga í vélinda (ein-
kenna GORD).
•
Zollinger-Ellison heilkenni.
•
Samhliða viðeigandi sýklalyfjameðferð til upprætingar
_Helicobacter pylori_
_(H. Pylori)_
hjá
sjúklingum með ætisár (peptic ulcer) (sjá kafla 4.2).
4.2
SKAMMTAR OG LYFJAGJÖF
_ _
Skammtar
_Fullorðnir/Aldraðir _
_ _
_Virkt skeifugarnarsár og virkt góðkynja magasár_
Ráðlagður skammtur fyrir bæði virkt skeifugarnarsár og virkt
góðkynja magasár er 20 mg einu sinni á
dag að morgni.
Flestir sjúklingar með virkt skeifugarnarsár ná bata innan
fjögurra vikna.
Sumir sjúklingar geta þó þurft fjögurra vikna meðferð til
viðbótar, til þess að ná bata.
Flestir sjúklingar með virkt góðkynja magasár ná bata innan sex
vikna.
Þó geta sumir sjúklingar þurft sex vikna meðferð til viðbótar,
til þess að ná bata
_. _
2
_Bakflæðissjúkdómur frá maga í vélinda með fleiðri eða
sárum_
Ráðlagður skammtur til inntöku er 20 mg einu sinni á dag í
fjórar til átta vikur.
_Langtímameðferð vi
                                
                                Прочетете целия документ
                                
                            

Сигнали за търсене, свързани с този продукт

Преглед на историята на документите