Glucophage Filmuhúðuð tafla 1000 mg

Страна: Исландия

Език: исландски

Източник: LYFJASTOFNUN (Icelandic Medicines Agency)

Купи го сега

Активна съставка:

Metforminum hýdróklóríð

Предлага се от:

Merck Santé s.a.s.*

АТС код:

A10BA02

INN (Международно Name):

Metforminum

дозиране:

1000 mg

Лекарствена форма:

Filmuhúðuð tafla

Вид предписание :

(R) Lyfseðilsskylt

Каталог на резюме:

008023 Þynnupakkning V0502

Статус Оторизация:

Markaðsleyfi útgefið

Дата Оторизация:

2001-07-19

Листовка

                                1
FYLGISEÐILL: UPPLÝSINGAR FYRIR NOTANDA LYFSINS
GLUCOPHAGE 1000 MG FILMUHÚÐAÐAR TÖFLUR
metforminhýdróklóríð
LESIÐ ALLAN FYLGISEÐILINN VANDLEGA ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ NOTA
LYFIÐ. Í HONUM ERU MIKILVÆGAR
UPPLÝSINGAR.
-
Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann
síðar.
-
Leitið til læknisins eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari
upplýsingum.
-
Þessu lyfi hefur verið ávísað til persónulegra nota. Ekki má
gefa það öðrum.
Það getur valdið þeim skaða, jafnvel þótt um sömu
sjúkdómseinkenni sé að ræða.
-
Látið lækninn eða lyfjafræðing vita um allar aukaverkanir.
Þetta gildir einnig um aukaverkanir
sem ekki er minnst á í þessum fylgiseðli. Sjá kafla 4.
Í FYLGISEÐLINUM ERU EFTIRFARANDI KAFLAR:
1.
Upplýsingar um Glucophage og við hverju það er notað
2.
Áður en byrjað er að nota Glucophage
3.
Hvernig nota á Glucophage
4.
Hugsanlegar aukaverkanir
5.
Hvernig geyma á Glucophage
6.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
1.
UPPLÝSINGAR UM GLUCOPHAGE OG VIÐ HVERJU ÞAÐ ER NOTAÐ
Glucophage
inniheldur metformin sem er lyf til meðferðar á sykursýki. Það
tilheyrir hópi lyfja sem
nefnast bígvaníð.
Insúlín er hormón sem framleitt er af briskirtli og gerir
líkamanum kleift að taka upp glúkósa (sykur)
úr blóðinu. Líkaminn notar glúkósa til að framleiða orku eða
geymir hann til að nota síðar.
Ef þú ert með sykursýki framleiðir briskirtillinn ekki nægilega
mikið insúlín eða líkaminn getur ekki
nýtt á réttan hátt það insúlín sem hann framleiðir. Þetta
leiðir til hás gildis glúkósa í blóðinu.
Glucophage hjálpar til við að lækka glúkósa í blóði og gera
gildi hans eins eðlilegt og unnt er.
Ef þú ert fullorðinn einstaklingur yfir kjörþyngd getur taka
Glucophage í lengri tíma einnig dregið úr
hættu á fylgikvillum sykursýki. Glucophage hefur verið tengt við
stöðuga líkamsþyngd eða minni
háttar þyngdartap.
Glucophage er notað til meðhöndlunar á sjúklingum me
                                
                                Прочетете целия документ
                                
                            

Данни за продукта

                                1
SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS
1.
HEITI LYFS
GLUCOPHAGE 1000 mg filmuhúðaðar töflur
2.
INNIHALDSLÝSING
Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 1000 mg metforminhýdróklóríð
samsvarandi 780 mg af metformini.
Sjá lista yfir öll hjálparefni í kafla 6.1.
3.
LYFJAFORM
Filmuhúðuð tafla.
Hvítar, egglaga, tvíkúptar filmuhúðaðar töflur, 19 mm x 10,5 mm
að stærð og 6,4 mm að þykkt, með
deilistriki á báðum hliðum og “1000” greypt öðrum megin á
töflurnar. Töflunni má skipta í jafna
helminga.
4.
KLÍNÍSKAR UPPLÝSINGAR
4.1
ÁBENDINGAR
Meðferð við sykursýki af tegund 2, einkum hjá
yfirþyngdarsjúklingum, þegar stjórn á mataræði og
hreyfing ein sér skila sér ekki í nægilegri stjórn á
blóðsykri.
•
Hjá fullorðnum má nota Glucophage sem einlyfjameðferð eða með
öðrum sykursýkislyfjum til
inntöku eða insúlíni.
•
Hjá börnum frá 10 ára aldri og unglingum má nota Glucophage sem
einlyfjameðferð eða með
insúlíni.
Komið hefur í ljós fækkun fylgikvilla sykursýki hjá of þungum,
fullorðnum sjúklingum með sykursýki
af tegund 2 sem meðhöndlaðir eru með metformini sem fyrsta
valmöguleika eftir að megrunarkúr
hefur brugðist (sjá kafla 5.1)
4.2
SKAMMTAR OG LYFJAGJÖF
Skammtar
_Fullorðnir með eðlilega nýrnastarfsemi (gaukulsíunarhraði ≥
90 ml/mín.) _
EINLYFJAMEÐFERÐ OG MEÐFERÐ ÁSAMT ÖÐRUM SYKURSÝKISLYFJUM TIL
INNTÖKU
_ _
Venjulegur byrjunarskammtur er 500 mg eða 850 mg af
metforminhýdróklóríði 2-3 svar á dag, gefinn
með eða eftir máltíð.
Eftir 10-15 daga skal aðlaga skammtinn eftir niðurstöðum
blóðsykursmælinga.
Lyfið þolist betur í maga ef skammturinn er aukinn hægt.
Gefa má sjúklingum sem fá stóran metforminhýdróklóríð skammt
(2-3 g á dag), eina Glucophage
1000 mg filmuhúðaða töflu í stað tveggja Glucophage 500 mg
filmuhúðaðra taflna.
Ráðlagður hámarksskammtur af metforminhýdróklóríði er 3 g á
dag, gefnir sem 3 aðskildir skammtar.
Ef ætlunin er að skipta um sykursý
                                
                                Прочетете целия документ
                                
                            

Сигнали за търсене, свързани с този продукт

Преглед на историята на документите